Formúla 1

Pujolar: Verstappen er sá besti sem ég hef séð

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Max Verstappen ræðir við verkfræðinga Toro Rosso liðsins í Jerez.
Max Verstappen ræðir við verkfræðinga Toro Rosso liðsins í Jerez. Vísir/Getty
Hinn ungi og umdeildi Max Verstappen hefur hæfileika til að standa sig betur en nokkur býst við samkvæmt Xevi Pujolar, yfirverkfræðing Toro Rosso.

Pujolar hefur starfað í Formúlu 1 síðan 2002. Hann hefur unnið með ökumönnum á borð við Juan Pablo Montoya, Mark Webber, Pastor Maldonado og Jean-Eric Vergne.

„Hann er besti ökumaður sem ég hef séð. Það er auðvelt að sjá hæfileikana sem hann hefur,“ sagði Pujolar.

„Nú þarf hann að standa sig. Hann þarf að vera stöðugt í stigasæti. Hann hefur hæfileikana. Hann er snöggur. En það er mikið bil á milli þess að vera snöggur og að vinna keppnir. Frá því að vinna keppnir og til þess að verða meistari er svo annað stórt skref,“ bætti Pujolar við.

Verkfræðingurinn er ánægður með agann og áræðnina sem hinn 17 ára nýliði hefur sýnt. Hann segir að margir mun reyndari ökumenn sýni ekki sömu fagmennsku og Verstappen.

„Hann vill verða sá besti og vinnur 100 prósent að því. Hann vill að fólkið í liðinu vinni einnig að því. Hann hvetur véla fólkið og liðið í heild sinni áfram,“ sagði Pujolar að lokum.


Tengdar fréttir

Raikkonen endar æfingalotuna á toppnum

Kimi Raikkonen á Ferrari setti í dag hraðasta tíma fyrstu æfingalotunnar fyrir komandi keppnistímabil í Formúlu 1. Þrír óku yfir 100 hringi í dag.

Bílskúrinn: Horfur á næsta tímabili

Mörg lið eru farin að huga að uppstillingum ökumanna fyrir næsta tímabil. Hver verður hvar, hver er samningsbundinn hverjum og ætlar einhver að hætta?

Max Verstappen sá yngsti frá upphafi

Max Verstappen mun taka þátt í æfingu á föstudaginn fyrir japanska kappaksturinn. Hann verður þar með yngsti ökumaður sem hefur tekið þátt í keppnishelgi. En hann verður 17 ára í dag.

Carlos Sainz keppir fyrir Toro Rosso

Carlos Sainz fær sæti Jean-Eric Vergne hjá Toro Rosso á næsta tímabili. Hann verður þá liðsfélagi Max Verstappen. Tveir nýliðar verða því hjá Toro Rosso á næsta tímabili.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×