Lífið

Kanye West sást brosandi

CANNES, FRANCE - JUNE 17: Kanye West attends the 2014 Cannes Lion
CANNES, FRANCE - JUNE 17: Kanye West attends the 2014 Cannes Lion
Rapparinn, upptökustjórinn og tónlistarmógúllinn Kanye West vakti athygli fjölmiðla vestanhafs um helgina þegar hann sást brosa á körfuboltaleik. West, sem þykir ekkert sérstaklega brosmildur, var þá staddur á leik Chicago Bulls og Cleveland Cavaliers. West var að tala við Scottie Pippen, fyrrverandi leikmann Bulls, og brosti yfir því sem stjarnan gamla sagði. En á myndbandi sem gengur um netheima virðist West horfa í myndavélina og átta sig á því að hann er brosandi. Við það verður hann mun alvarlegri og telja fjölmiðlar hann einfaldlega ekki hafa viljað brosa framan í myndavélina.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×