Lífið

Kýldi konu á sviði

Samúel Karl Ólason skrifar
Joseph Foreman eða Afroman
Joseph Foreman eða Afroman Vísir/AP
Tónlistarmaðurinn Afroman kennir kvíða um að hann hafi kýlt konu sem fór upp á svið til hans og segist ekki hafa vitað hver þetta væri. Hann ætlar að leita sér hjálpar vegna kvíðans. Hann var handtekinn eftir atvikið og ákærður fyrir líkamsárás.

Afroman, sem heitir réttu nafni Joseph Foreman, var upp á sviði þegar konan kemur aftan að honum og um leið og hann verður hennar var slær hann frá sér. Hann sagðist hafa haldið að konan væri maður sem hefði verið að kalla að honum á sviðinu og verið mjög ruddalegur.

„Ég vil biðjast afsökunar á framferði mínu,“ er haft eftir honum á vef People. Hann segir að hann hafi ekki verið búinn að fá sér lyfin sín og að hann hafi þurft að ganga langa vegalend áður en hann kom fram.

Afroman er helst þekktur fyrir þetta lag sitt.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×