Lífið

Heimurinn ferst ekki þótt þig vanti hráefni

Adda Soffia Ingvarsdottir skrifar
Ólöf eyðir miklum tíma í eldhúsinu og er dugleg að prófa sig áfram með uppskriftir.
Ólöf eyðir miklum tíma í eldhúsinu og er dugleg að prófa sig áfram með uppskriftir. VísirVilhelm
Ólöf Brynja Jónsdóttir matráður opnaði Facebook-uppskriftasíðuna Matarsíða lötu konunnar fyrir skemmstu. „Þetta byrjaði þannig að fólk var alltaf að biðja mig um uppskriftir að því sem ég var að elda, þannig að ég ákvað að gera síðu fyrir vinnufélaga og þá nánustu með uppskriftum. Þetta átti nú ekki að fara út í neina vitleysu, en nú er ég algjörlega búin að missa stjórnina,“ segir Ólöf og hlær.

Ástæðuna fyrir nafninu, Matarsíða lötu konunnar, segir Ólöf vera tilkomna vegna þess að oft nenni fólk ekki að elda það sem það heldur að sé flókið. „Það er pínulítil leti í því. Þú getur alveg eldað góðan mat án þess að hann sé flókinn. Það þarf ekki alltaf að mæla allt og gera 100% og þú verður að leyfa þér að breyta uppskriftunum og spinna svolítið yfir pottunum og vera kreatífur.“

Ólöf segist aldrei hafa fylgt neinum straumum, heldur bara gert hversdagslegan, venjulegan mat. „Það er enginn lélegur kokkur, einföldustu hlutir geta verið svo góðir. Kannski ert þú með uppskrift með tuttugu hráefnum og þú átt þau ekki. Heimurinn ferst ekki þótt þú eigir ekki eitthvert hráefni. Prófaðu! Hvað er gott með þessu? Hvernig er bragðið? Þetta þarf ekki að vera fullkomið.“

Galdurinn segir hún að passa magnið og setja ekki of mikið í byrjun. „Ef þú passar það þá geturðu ekki klúðrað. Eins ef fólk er mikið að brenna matinn þá þarf að lækka hitann.“

Ólöf segist sjálf vera með bunka af matreiðslubókum á náttborðinu og þar af leiðandi dugleg að gera tilraunir á fjölskyldunni. „Þau hafa aldrei sagt beint að eitthvað sé vont. Maðurinn minn hefur samt sagt við mig „þú þarft ekki að elda þetta aftur“ og þá veit ég að það var ekkert sérstakt,“ segir hún og hlær.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×