Sport

Leikmenn Packers fara snemma til Seattle

Aaron Rodgers eftir leikinn um síðustu helgi.
Aaron Rodgers eftir leikinn um síðustu helgi. vísir/getty
Undanúrslitaleikirnir í NFL-deildinni eru framundan og þar verður öllu tjaldað.

Green Bay Packers er á leið til Seattle þar sem liðið mætir meistaraliði Seahawks.

Liðin mættust einnig í Seattle í opnunarleik tímabilsins og þá vann Seattle öruggan sigur, 36-16. Packers hefur lært af þeim leik.

Liðið mun fljúga til Seattle á föstudag eða degi fyrr en venjulega. Þjálfarinn Mike McCarthy segir að liðið muni ekki spila eins og í fyrsta leik tímabilsins.

Það er hausverkur fyrir Green Bay að leikstjórnandi liðsins er meiddur í kálfa og þar af leiðandi haltur. Þrátt fyrir það átti hann stórleik um síðustu helgi er Packers skellti Dallas Cowboys.

Rodgers verður betri með hverjum deginum og óttast ekki að þurfa að yfirgefa völlinn um helgina.

NFL



Fleiri fréttir

Sjá meira


×