Erlent

Lík konu fannst á skólalóð í Englandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Shrewsbury í vesturhluta Englands.
Shrewsbury í vesturhluta Englands. Mynd/Google
Þrír hafa verið handteknir í Englandi grunaðir um að hafa myrt konu á þrítugsaldri. Lík konunnar fannst á skólalóð grunnskóla í bænum Shrewsbury í vesturhluta Englands rétt fyrir miðnætti í gær.

Réttarrannsókn lögreglu stendur nú yfir á skólalóðinni. Aðgangi að skólalóðinni verður lokað fram á miðvikudag. Ekki hefur verið greint frá því hver konan er.

Tveir karlmenn, 32 ára og 39 ára, hafa verið handteknir auk 31 árs gamallar konu grunuð um morð. Ekki liggur fyrir hvenær krufning mun fara fram að því er segir á vef BBC.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×