Enski boltinn

Skytturnar skutust upp í annað sætið með sigri á Sunderland | Sjáðu mörkin

Arsenal skaust upp fyrir Manchester-liðin með 3-1 sigri á Sunderland í ensku úrvalsdeildinni í dag en Skytturnar þurftu heldur betur að hafa fyrir sigrinum.

Joel Campbell kom Arsenal yfir með snyrtilegu marki í fyrri hálfleik en Olivier Giroud varð fyrir því óláni að jafna metin fyrir Sunderland með sjálfsmarki skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks.

Giroud bætti upp fyrir mistökin í seinni hálfleik með góðu skallamarki en Aaron Ramsey gerði að lokum út um leikinn með marki á 93. mínútu.

Skytturnar fara upp fyrir Manchester-liðin með sigrinum en Arsenal er tveimur stigum á eftir Leicester að 15. leikjum loknum.

Giroud jafnar metin fyrir Sunderland með klaufalegu sjálfsmarki: Giroud kemur Arsenal aftur yfir: Ramsey gulltryggir sigurinn:



Fleiri fréttir

Sjá meira


×