Erlent

Hjó höfuðið af móður sinni á gamlárskvöld

Samúel Karl Ólason skrifar
Christian Gomez myrti móður sína með exi og hjó af henni höfuðið.
Christian Gomez myrti móður sína með exi og hjó af henni höfuðið. Vísir/Getty/AP
Lögregluþjónar í Pinellas sýslu í Flórída brugðust á gamlárskvöld við símtal frá ungum manni sem sagði að eldri bróðir sinn hefði myrt móðir þeirra og tekið af henni höfuðið. Lögregluþjónar fundu lík konunnar og höfuð fyrir utan heimili þeirra þar sem hún hafði verið dregin út að ruslatunnum.

Lögreglan segir að Christian hafi skipulagt morðið í tvo daga, en hann var reiður yfir því að hún var búin að biðja hann um að færa kassa á heimili þeirra. Þar að auki var hann afbrýðissamur vegna þeirrar athygli sem yngri bróðir hans fékk.

Bob Gualtieri, lögreglustjóri í Pinellas sýslu, sagði þetta vera eitt versta mál sem þeir hefðu nokkurn tíman komið að.

Hinn 27 ára gamli Christian réðst á Mariu Suarez-Cassagne's í bílskúr heimilis þeirra. Hann flúði af vettvangi en var handtekinn skömmu seinna. Christian hefur verið greindur með geðklofa og hefur verið handtekinn nokkrum sinnum áður.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×