Alls vann Ísland til sjö gullverðlauna í dag auk þess að næla sér í sjö silfurverðlaun og fern bronsverðlaun. Uppskeran var frábær.
Helst bar að Aníta Hinriksdóttir vann gull í 1500 m hlaupi með miklum yfirburðum og bætti þar með fyrir að missa af gullinu í 800 m hlaupinu á þriðjudag sem er hennar aðalgrein. Hún sýndi mikið öryggi í dag og átti nóg eftir fyrir endasprettinn.
Guðni Valur Guðnason kom mörgum á óvart með því að vinna kringlukast karla en þessi nítján ára kappi er í raun nýbyrjaður að æfa greinina.
Hin fimmtán ára Þórdís Eva Steinsdóttir gerði sér svo lítið fyrir og vann gull í 400 m hlaupi en þessi stórefnilega stúlka er að stíga sín fyrstu skref á stóra sviðinu eftir að hafa slegið mýgrút meta í yngri aldursflokkum.
Arnar Pétursson vann svo gull í 3000 m hinrdrunarhlaupi, Kristinn Torfason í langstökki, Ívar Kristinn Jasonarson í 400 m grindarhlaupi og Arna Stefanía Guðmundsdóttir í 400 m grindarhlaupi.
Fylgst var með gangi mála á Vísi og má lesa lýsinguna hér fyrir neðan.
[Bein lýsing]
19.30 Það er búið að ganga mikið á og ég hef ekki náð að koma öllu að. En Kristinn Torfason vann gull í langstökki með stökki upp á 7,24 m en hann á best 7,82 m. Þá vann Ásdís Hjálmsdóttir silfur í kringlukasti.
19.21 Enn eitt íslenskt gull var að koma í síðustu grein dagsins. Arna Stefanía Guðmundsdóttir vann í 400 m grindarhlaupi á 1:00,77 mínútum sem er persónuleg bæting hjá henni. Frábær árangur hjá henni og hennar önnur verðlaun í dag.
19.15 Ívar Kristinn Jasonarson var að vinna gull í 400 m grindarhlaupi með nokkrum yfirburðum. Hann kom í mark á 53,21 sekúndum og var tæpum tveimur sekúndum á undan næsta manni. Hann náði að bæta sinn besta tíma um 0,06 sekúndur.

18.42 Þá kom gullið hjá Anítu! Eftir vonbrigðin í 800 m vann hún öruggan sigur með frábæru hlaupi í 1500 m. Hún kom í mark á 4:26,37 mínútum og vann með yfirburðum. Hún fór sér hægt í upphafi en tók forystu þegar um 500 m voru eftir og leit ekki um öxl. Endaspretturinn var frábær og sigurinn aldrei í hættu.

18.17 Tvenn verðlaun í viðbót komin. Hulda Þorsteinsdóttir vann silfur og Bogey Ragnhiður Leósdóttir brons í stangarstökki kvenna. Hulda stökk 3,60 m og Bogey 3,50 m. Gull hlýtur Gina Reuland frá Lúxemborg en hún er enn að stökkva. Fór síðast yfir 4,30 sem er persónulegt met. Smáþjóðaleikametið er 4,40 m og er í eigu Þóreyjar Eddu Elísdóttur sem nú situr í stjórn ÍSÍ.
17.45 Guðni Valur Guðnason vann gull í kringlukasti karla með kasti upp á 56,40 m en það er persónulegt met hjá kappanum og bæting upp á rúman metra. Hilmar Örn Jónsson náði sér ekki á strik og varð fimmti með 43,96 m.
17.44 Ívar Kristinn Jasonarson komst einnig í úrslitin í 200 m hlaupinu. Hann varð annar í seinni undanúrslitariðlinum á 21,91 sekúndum.
17.38 Kolbeinn Höður var rétt áðan að vinna silfur í 400 m hlaupi en nú gerði hann sér lítið fyrir og náði besta tímanum í 200 m hlaupi. Hann hljóp á 21,62 sekúndum en úrslitahlaupið er á laugardag.
17.35 Kristinn Þór Kristinsson varð annar í 1500 m hlaupi karla á 3:52,91 mínútum eftir hörkukeppni við Amine Khadiri frá Kýpur. Hann hljóp á 3:51,97 mínútum. Kristinn Þór stórbætti sinn besta árangur - um tæpar þrjár sekúndur.
17.33 Það má lesa viðtal við Þórdísi Evu hér. „Þetta er mitt fyrsta A-landsliðsmót og langaði mig mest til að fara á pall. Og helst til að vinna,“ sagði hún við Vísi nú rétt áðan.

17.08 Þá er næst 400 m hlaup kvenna þar sem hin fimmtán ára Þórdís Eva Steinsdóttir verður í eldlínunni. Hún var fyrst í undanúrslitunum og er skráð með besta tímann í hlaupið.

16.51 Kringlukast karla og stangarstökk kvenna er að byrja og munum við fylgjast með því. En nú er að byrja 400 m hlaup karla þar sem spennandi verður að fylgjast með Kolbeini Heði Gunnarssyni. Hann var með besta tímann í undanrásum.

16.31 Einar Daði Lárusson gerði sér lítið fyrir og náði í silfur í grindinni. Milan Trajkovic frá Kýpur vann nokkuð öruggan sigur á 13,88 sekúndum. Það var hörð barátta hjá Einari Daða við Claude Godart frá Lúxemborg um silfrið en Einar Daði gerði engin mistök og kláraði sitt hlaup af öryggi. Hann kom í mark á 14,71 sekúndum - 0,01 sekúndu á undan Godart og ekki langt frá sínum besta tíma. Guðmundur Heiðar Guðmundsson varð fjórði á 15,24 sekúndum sem er persónulegt met hjá honum.
16.25 Næst er 110 m grindahlaup þar sem Einar Daði Lárusson og Guðmundur Heiðar Guðmundsson eru fulltrúar Íslands. Einar á betri tíma og ætti með réttu að ná bronsi hér í dag. Tveir keppendur eiga töluvert betri tíma en hann en sjáum hvað setur. Hlaupið hefst innan fárra mínútna.

16.03 Fyrsta kast Vigdísar er komið og það er ágætt. 55,40 m.
15.52 Fyrsta keppnisgrein dagsins er sleggjukast kvenna. Þar eru þrír keppendur skráðir til leiks og þar af tveir Íslendingar. Vigdís Jónsdóttir er Íslandsmethafinn en met hennar, 57,06 m, er í hættu í dag. Metið setti hún í fyrra en Vigdís verður nítján ára í ár.
15.45 Það er margt af okkar besta frjálsíþróttafólki í eldlínunni í dag. Aníta Hinriksdóttir keppir í 1500 m hlaupi og freistar þess að vinna gullið sem hún rétt missti af í 800 m á þriðjudag. Þá verður einnig forvitnilegt að fylgjast með 400 m hlaupi karla og kvenna. Þar náðu Kolbeinn Höður Gunnarsson og Þórdís Eva Steinsdóttir bestum tíma í undanúrslitum en Þórdís Eva er einungis fimmtán ára gömul.
15.30 Góðan daginn og velkomin með Vísi á Laugardalsvöllinn þar sem annað frjálsíþróttakvöldið á Smáþjóðaleikunum er hafið.