
Sauð næstum því upp úr hjá Conor og Jose Aldo
Þá stiga þeir báðir á vigtina í MGM Grand Garden Arena. Fyrir vigtunina var víst mikill hiti í þeim báðum baksviðs og mátti víst litlu muna að það yrðu læti þar.
Eftir að báðir höfðu vigtað sig lá næstum við slagsmálum á milli þeirra. Þessir menn hreinlega þola ekki hvorn annan.
Á morgun fá þeir loksins að taka á hvor öðrum í búrinu og það verður einn rosalegur bardagi.
Umgjörðin og stemningin á vigtuninni hjá þeim var stórkostleg eins og sjá má á þessum myndum sem Björgvin Harðarson, myndatökumaður 365, tók.
Innslagið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Bardagakvöldið stóra með Gunnari Nelson og Conor McGregor verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Hægt er að kaupa áskrift á 365.is. Íþróttadeild 365 er í Las Vegas og flytur ykkur nýjustu tíðindi. Fylgstu með á Facebook, Twitter og Snapchat: sport365.
Tengdar fréttir

Attar: Gunnar stendur frammi fyrir risatækifæri
Bandaríski umboðsmaðurinn Audie Attar segir að Gunnar Nelson verði kominn í kjöraðstöðu í UFC-heiminum ef hann klárar Demian Maia með stæl.


Bardagi ólíkur öllum öðrum hjá Gunnari Nelson
Gunnar Nelson mun stíga risaskref í átt að draumi sínum um að verða heimsmeistari hjá UFC ef hann sigrar Demian Maia í nótt. Hann er í sínu besta formi eftir frábærar, og nokkuð óhefðbundnar, æfingabúðir.

Kavanagh: Veit ekki hvort orðið stress sé til á íslensku en Gunni kann það ekki
Þjálfari Gunnars Nelson reiknar með að Gunnar berjist um heimsmeistaratitilinn næsta sumar.

Haraldur Nelson: Maia hefur aldrei verið betri en núna
Pabbi Gunnars Nelson fylgir honum hvert sem er og er spenntur fyrir bardaganum á laugardaginn.

Gunnar og Conor náðu vigt í brjálaðri stemningu | Myndband
Það var algjörlega geggjuð stemning í MGM Grand Garden Arena í kvöld er Írarnir tóku aftur yfir þennan sögufræga sal.

Sjáðu Gunnar og Maia stíga á vigtina
Vinir Íslands frá Írlandi sýndu stuðning sinn í verki í kvöld er Gunnar Nelson steig á vigtina í Las Vegas.