Lífið

Jóhannes Haukur féll á Game of Thrones-prófinu

Eins og alþjóð veit hreppti íslenski leikarinn Jóhannes Haukur Jóhannesson hlutverk í einhverjum vinsælustu sjónvarpsþáttum sögunnar, Game of Thrones.

Sjá einnig: Jóhannes Haukur í Game of Thrones

Þátturinn á sér marga blóðheita aðdáendur sem þekkja alla fletir þeirra eins og handarbökin á sér og hafa lesið bækurnar um Krúnuleikana spjaldanna á milli.

Því var ekki úr vegi fyrir spjallaþáttastjórnandann Loga Bergmann að spyrja gest sinn Jóhannes út í hina ýmsu vinkla þáttanna – svo hann verði nú sér ekki til skammar úti í hinum stóra heimi.

Hann fékk þrjár spurningar, nokkrar þeirra svínslega þungar, en nú brot úr heimsókn Jóhannesar til Loga má sjá í spilaranum hér að ofan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.