Erlent

Sprengdi sjálfa sig í loft upp skammt frá Bláu moskunni

Atli Ísleifsson skrifar
Í Sultanahmet-hverfinu er meðal annars að finna Bláu moskuna og Ægissif, eina mest sóttu ferðamannastaði heims.
Í Sultanahmet-hverfinu er meðal annars að finna Bláu moskuna og Ægissif, eina mest sóttu ferðamannastaði heims. Mynd/Hot toIstanbul
Talsmaður yfirvalda í tyrknesku borginni Istanbul segir að kona hafi sprengt sjálfa sig í loft upp við lögreglustöðina í Sultanahmet-hverfinu. Bláu moskuna og Ægissif, eina mest sóttu ferðamannastaði heims er að finna í hverfinu.

Í frétt Reuters kemur fram að tveir lögreglumenn hafi særst í árásinni. Þá segir að konan hafi talað ensku, sagst hafa týnt vegabréfi sínu og síðar sprengt sjálfa sig í loft upp. Ekki er vitað um þjóðerni hennar að svo stöddu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×