Erlent

Tveggja og hálfs árs stelpu rænt og nauðgað í Delí

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Fólk hefur látið reiði sína í ljós á götum úti.
Fólk hefur látið reiði sína í ljós á götum úti. vísir/epa
Mikillar reiði gætir á Indlandi eftir að tveimur börnum var nauðgað í höfuðborginni Nýju-Delí fyrr í dag. Borgarstjórinn Arvind Kejriwal var ómyrkur í máli er hann ræddi við Indian Express um málið.

Arvind Kejriwalvísir/getty
„Lögreglunni í borginni hefur algjörlega mistekist að tryggja öryggi barna í borginni og það er ólíðandi að nauðganir sem þessar haldi áfram,“ segir Kejriwal. Lögreglan heyrir undir innanríkisráðuneytið. „Hvað eru forsætisráðherrann og ríkisstjórnin að gera? Ef þau ráða ekki við verkefnið eiga þau að færa það til borgarinnar til að tryggja öryggi borgaranna.“

Annarri stelpunni var rænt af heimili sínu í gærkvöldi af tveimur mönnum á mótorhjólum. Stúlkunni, sem er aðeins tveggja og hálfs árs, var skilað aftur í dag og fór þá ekki milli mála hvað hafði gerst sökum áverka og blæðandi sára á líkama hennar.

Nýja-Delí hefur verið uppnefnd „nauðganahöfuðborg Indlands“ en þetta eru ekki fyrstu fregnirnar af hrottafengnum nauðgunum sem berast þaðan. Árið 2012 var konu hópnauðgað í strætisvagni í borginni með þeim afleiðingum að hún lést af sárum sínum. Gerendurnir voru hengdir fyrir verknaðinn. Þá var sjö ára stúlku rænt og nauðgað í mars 2013. Mikil mótmæli hafa iðulega sprottið upp í kjölfar frétta af nauðgununum en íbúar, líkt og borgarstjórinn, vilja meina að ekki sé nóg gert til að tryggja öryggi þeirra.


Tengdar fréttir

Indversku hrottarnir mættu í dómsal í morgun

Mennirnir fimm, sem grunaðir eru um að hafa nauðgað og misþyrmt tuttugu og þriggja ára konu um borð í strætisvagni í Nýju-Delí á Indlandi um miðjan síðasta mánuð, mættu nú á ellefta tímanum fyrir dómara í höfuðborginni.

Enn ein hópnauðgunin á Indlandi

Fimm menn hafa verið handteknir á Indlandi vegna gruns um að hafa rænt og ítrekað nauðgað japönskum námsmanni í borginni Kalkútta yfir rúmlega mánaðarlangt tímabil

Fimm ára stelpu nauðgað á Indlandi

Fimm ára gamalli telpu var rænt, hún svelt og henni nauðgað í Nýju Delí á Indlandi í vikunni. Málið hefur valdið mikilli reiði á Índlandi og hafa mótmæli sprottið þar upp núna um helgina.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×