Harmageddon

Reykjavíkurdætur gefa út nýtt lag

Anna Tara Andrésdóttir skrifar
Dúóið Cyber sem er hluti Reykjavíkurdætra hafa gefið frá sér lagið Fiðringur. Cyber skipa Salka Valsdóttir og Jóhanna Rakel Jónasdóttir. Þórdís Björk Þorfinnsdóttir og Sigurlaug Sara Gunnarsdóttir syngja viðlagið.

Textinn er einkum áhugaverður en hér er brot úr honum:

Ég bendi á staðreyndir

því það eru nafngreindir

nauðgarar í öllum heiminum

saurgandi innyfli í konunum

og hvar eru þeir staddir í heiminum?

Tjah, allavega ekki í fangelsum!

Steinunn Jónsdóttir sá um upptökur á myndbandinu og klippingu. Hún er einnig í Reykjavíkudætrum og í hljómsveitinni Amaba Dama. Gnusi Yones sá um hljóðupptökur og vinnslu á laginu. Lady Babúska bjó til taktinn og Antonía Lárusdóttir stíliseraði og farðaði. Í myndbandinu koma einnig fram Reykjavíkurdæturnar Þuríður Blær Jóhannsdóttir, Bergþóra Einarsdóttir og Kolfinna Nikulásdóttir, betur þekkt í dag sem Kylfan.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.