Lífið

Þrumuguðinn sjálfur kynnir Saturday Night Live

Adda Soffía Ingvarsdóttir skrifar
Chris Hemsworth
Chris Hemsworth Vísir/getty
Haldið ykkur í, því tilkynnt hefur verið að  þrumuguðinn sjálfur Chris Hemsworth muni kynna skemmtiþáttinn vinsæla Saturday Night Live þann 7. mars næstkomandi.

Hemsworth, sem sló í gegn í hlutverki þruguðsins Thor í samnefndri mynd, hefur ekki kynnt þáttinn áður, en þetta mun væntanlega vekja mikla lukku hjá aðdáendum hans.

Framundan hjá Hemsworth er frumsýning myndarinnar Avengers: Age of Ultron þann 1. maí á þessu ári og svo mun hann leika í framhaldsmyndinni Thor: Ragnarok sem frumsýnd 3. nóvember 2017. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×