Holland og Pólland áfram í undanúrslit á HM í Danmörku Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 16. desember 2015 19:14 Tess Wester, markvörður Hollands, gat leyft sér að brosa í dag. vísir/epa
Holland og Pólland tryggðu sér í dag sæti í undanúrslitum á HM kvenna í handbolta í Danmörku. Hollendingar unnu þriggja marka sigur á Frökkum, 28-25, í Kolding. Þetta er í fyrsta sinn sem Holland kemst í undanúrslit en besti árangur hollenska liðsins var 5. sæti á HM 2005. Estavana Polman var markahæst í liði Hollands með 10 mörk en hún er ein af markahæstu leikmönnum HM með 37 mörk. Allison Pineau skoraði átta mörk fyrir Frakka sem mæta Rússum í leiknum um 5. sætið.Monika Kobylinska skoraði sex mörk fyrir Pólverja gegn Rússum.vísir/gettyRússar lutu í gras fyrir Pólverjum, 21-20, í Herning. Pólland, sem endaði í 4. sæti á HM í Serbíu fyrir tveimur árum, leiddi með tveimur mörkum í hálfleik, 11-9. Monika Kobylinska var markahæst í liði Póllands með sex mörk en Karolina Kudłacz-Gloc, samherji Þorgerðar Önnu Atladóttur hjá þýska liðinu HC Leipzig, kom næst með fimm mörk. Anna Vyakhereva skoraði mest fyrir Rússa, eða fimm mörk. Holland og Pólland mætast í undanúrslitum á föstudaginn en það kemur í ljós síðar í kvöld hvaða lið mætast í hinum undanúrslitaleiknum. Þá mætast annars vegar Noregur og Svartfjallaland og hins vegar Danmörk og Rúmenía.
Handbolti Mest lesið „Andlitið á mér var afmyndað“ Fótbolti Íslenskt hugvit á að umbylta golfheiminum Golf Uppgjörið: Víkingur - FH 3-0 | Meistararnir ekki í vandræðum í Víkinni Íslenski boltinn Stálheppinn að vera á lífi og gæti snúið aftur með Aroni Fótbolti Stúkan: Óvenju miklar árásir eða viðkvæmari en aðrir Íslenski boltinn Telur að Valsmenn nenni ekki að dansa tangóinn hans Túfa til lengdar Íslenski boltinn Ten Hag neitaði að kenna Eriksen um jöfnunarmarkið Fótbolti Bragðdauft á Old Trafford Enski boltinn Uppgjörið: KA - HK 3-3 | Bikarþynnka í heimamönnum Íslenski boltinn „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Fleiri fréttir Viktor Gísli öflugur gegn PSG ÍBV og Grótta með sigra Andri Már spilaði stóran þátt í sigri Leipzig Töpuðu með ellefu í Tékklandi Haukur frábær í öruggum sigri Búkarest Sporting rúllaði yfir Veszprém Loks vann Valur leik Sigvaldi Björn magnaður í fyrsta sigri Kolstad HR og HSÍ taka höndum saman: „Engin meðalmennska hér, það er tekið á því“ Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Háspenna er FH vann Hafnarfjarðarslaginn Hörmulegur seinni hálfleikur varð þýsku meisturunum að falli Orri skoraði þrjú er Sporting valtaði yfir Íslendingaslaginn Fínn leikur Íslendinganna í Þýskalandi dugði ekki til Þjálfarinn í byrjunarliðinu: „Mér fannst þörf á smá aga í leikinn“ Sjö mörk Jóhönnu hjálpuðu til við að landa fyrsta sigrinum Uppgjörið: Fjölnir - HK 28-27 | Flautumarkið fékk ekki að standa og Fjölnir slapp með sigur Ihor fór mikinn í stórsigri Aftureldingar Fullkomin byrjun lærisveina Arnórs heldur áfram Ólafur með fjögur mörk í fyrsta sigri Karlskrona Aðeins einn löglegur dúkur svo Valur og FH byrja saman í Krikanum Arftaki Kristjáns óvænt hættur Guðmundur miður sín eftir stórtap: „Eitt það versta sem ég hef upplifað lengi“ Elín Klara og Sara Sif sáu um Stjörnuna Slæm byrjun Vals hélt áfram í Garðabænum „Höfðum mýmörg tækifæri til að klára þennan leik miklu fyrr“ „Fyrst og fremst bara ekki nógu sáttur með mína menn“ Gísli Þorgeir bar af í Íslendingaslag kvöldsins Haukar áfram á toppnum með fullt hús stiga Fram áfram með fullt hús Sjá meira