Skotið á sjúkrahús í Donetsk Atli Ísleifsson skrifar 4. febrúar 2015 15:03 Upphaflega bárust fréttir um að talsmaður Úkraínuhers hafi kennt aðskilnaðarsinnum um árásina, en aðskilnaðarsinnar segja stjórnarherinn bera ábyrgð á henni. Vísir/AFP
Saksóknari í Úkraínu segir að fjórir til tíu manns hafi látist í árás á sjúkrahús í borginni Donetsk í austurhluta Úkraínu. Upphaflega bárust fréttir um að talsmaður Úkraínuhers hafi kennt aðskilnaðarsinnum um árásina, en aðskilnaðarsinnar segja stjórnarherinn bera ábyrgð á henni. „Samkvæmt fyrstu upplýsingum eru 4-10 manns látnir. Verið er að kanna fjölda særðra. Hryðjuverkamennirnir hafa enn á ný notað vopn gegn óbreyttum borgurum í Donetsk-héraði,“ sagði í yfirlýsingu frá saksóknaraembættinu.Í frétt BBC segir að lík sáust hulin undir teppum fyrir utan sjúkrahúsið sem er að finna í hverfinu Kirovskiy. Harðir bardagar hafa geisað í og í kringum Donetsk síðustu vikur. Federica Mogherini, utanríkismálastjóri Evrópusambandsins, hefur hvatt til vopnahlés til að leyfa óbreyttum borgurum að yfirgefa borgina. Öryggis- og samvinnustofnun Evrópu (ÖSE) hefur sömuleiðis hvatt til þriggja daga vopnahlés. Að sögn mannréttindasamtakanna Amnesty eru sjö þúsund íbúar enn í bænum Debaltseve þar sem hörð átök hafa staðið síðustu vikuna. Vanalega eru íbúar bæjarins 25 þúsund talsins. Aðskilnaðarsinnar hafa sótt hart að bænum síðustu daga, en bærinn er hernaðarlega mikilvæg borg þar sem hún tengir aðrar stærri borgir saman.
Mest lesið Egill Þór er látinn Innlent Setti ofan í við Ingu: „Vert þú ekki með þennan skæting við mig“ Innlent Flugferðum aflýst Innlent Brást of harkalega við dyraati Innlent Lokað um Þrengsli og vegir víða á óvissustigi Veður „Þetta er farið að að bera meira keim af einelti en löglegri stjórnsýslu” Innlent Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Erlent Nýir ráðherrar ætli að vinna saman og ekki loka sig af Innlent Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Erlent Flæddi inn í hús á Arnarnesi Innlent Fleiri fréttir Trump setur eignarhald Grænlands aftur á dagskrá Brenndi konu til bana í neðanjarðarlest í New York Sádar sagðir hafa sent fjórar viðvaranir Skutu niður eigin herþotu yfir Rauðahafi Færeyingar fagna tvennum göngum Íslenskur skurðlæknir hlúir að fólki í Magdeburg Mótmælt á meðan minningarathöfn stóð yfir „Þetta var gjörsamlega hræðilegt“ Fimm látnir og tvö hundruð særðir Koma naumlega í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs Fimmtugur geðlæknir ók bílnum Heyrðu í þyrlum og öskrum út um gluggann Bifreið ekið á hóp fólks á jólamarkaði Hefja aftur leit að MH370 rúmum tíu árum eftir hvarfið Vara við upprisu ISIS Sjö ára stúlka stungin til bana í skóla Zagreb Eins og Pelicot hafi geymt glæpina á hörðu drifi í huga sínum Repúblikanar höfnuðu fjárlagafrumvarpi sem Trump studdi Sænskur rappari skotinn til bana í bílastæðahúsi Skoða hvort stunguárás hafi átt að líkjast morðinu í New York Mangione líka ákærður af alríkissaksóknurum Saksóknari sagður óhæfur í síðasta málinu gegn Trump Þrjátíu og fimm börn tróðust undir á jólahátíð Danskt sjúkrahús kært til lögreglu vegna tilrauna á ungum drengjum Musk og Trump valda uppnámi í Washington Skorar vestrið á hólm í 21. aldar einvígi Vaktin: Dominique Pelicot dæmdur í tuttugu ára fangelsi Hætta að rukka í almenningssamgöngurnar Dómar yfirvofandi í máli Pelicot Ætla að birta Gaetz-skýrsluna eftir allt saman Sjá meira