Viðskipti innlent

Fjárlaganefnd vill frekari svör um meint samkeppnisbrot Íslandspósts

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, og Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, og Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri Íslandspósts.
Forstjóri og stjórnarformaður Íslandspósts komu á fund fjárlaganefndar í dag til að svara spurningum nefndarmanna um meint samkeppnislagabrot. Íslandspóstur hefur verið sakaður um að nýta þann hluta rekstursins sem ríkið hefur gefið fyrirtækinu einkarétt á að sinna til að greiða niður samkeppnisrekstur þess.

Vigdís Hauksdóttir, formaður fjárlaganefndar, kveðst ánægð með fundinn þar sem stjórnendur Póstsins svöruðu spurningum og rökstuddu mál sitt.

„Það sem við þurfum að skoða betur eru fullyrðingar sem að við þurfum að fá svör við bæði frá Póst- og fjarskiptastofnun og Samkeppniseftirlitinu,“ segir Vigdís um niðurstöðu fundarins. Búið er að óska eftir fundi með forsvarsmönnum stofnunarinnar til að fá svör við þeim spurningum.

„Okkur finnst enn þá vera aðeins óskýrt þessar fullyrðingar Póst- og fjarskiptastofnunar þar sem uppi eru áhöld um að einkaleyfi sé að greiða niður samkeppnisrekstur,“ útskýrir Vigdís.

Aðspurð segir Vigdís skoðun fjárlaganefndar ekki snúa að kaupi og kjörum stjórnenda fyrirtækisins, sem þó hefur sætt nokkurri gagnrýni. „Við erum að horfa á reksturinn, stóru myndina, þessar stóru ávirðingar sem hafa komið fram,” segir hún og vísar þar til meintra samkeppnisbrota fyrirtækisins.

„Þeir hafa stofnað dótturfélög á síðustu árum og kaupa fyrirtæki á markaði til að setja undir hatt Íslandspósts, sem ég tel ekki samrýmast lögum að öllu leyti,“ segir hún. „Þeir telja að þeim sé þetta heimilt.”






Fleiri fréttir

Sjá meira


×