Bíó og sjónvarp

Hardy hættir við Suicide Squad

Tom Hardy er hættur við að leika í illmennamyndinni Suicide Flag.
Tom Hardy er hættur við að leika í illmennamyndinni Suicide Flag. Vísir/Getty
Tom Hardy er hættur við að leika í illmennamyndinni Suicide Squad sem er væntanleg frá kvikmyndaverinu Warner Bros.

Samkvæmt The Hollywood Reporter er ástæðan sú að tökurnar rákust á við önnur verkefni hjá honum. Tilkynnt var um leikarana í myndinni í desember síðastliðnum. Hardy átti að leika Rick Flag og í stað hans hefur Jake Gyllenhaal verið boðið hlutverkið. Óvíst er hvort hann getur þekkst boðið því hann er þessa dagana að leika í leikritinu Constellations á Broadway.

Í öðrum hlutverkum í Suicide Squad verða Jaret Leto í hlutverki Jókersins, Will Smith sem Deadshot, Margot Robbie sem Harley Quinn og fyrirsætan Cara DeLevingne sem Enchantress. Tökur eiga að hefjast í apríl næstkomandi. David Ayer, sem síðast leikstýrði Fury, verður á bak við myndavélina.

Áætlað er að myndin komi í bíó 5. ágúst á næsta ári.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×