Menning

Fáum nýja unnendur óperutónlistar

Magnús Guðmundsson skrifar
Þessi tónlist er ákaflega aðgengileg og rómantísk, segir Antonia Hevesi píanóleikari.
Þessi tónlist er ákaflega aðgengileg og rómantísk, segir Antonia Hevesi píanóleikari. Vísir/Anton Brink
Rússnesk rómantík er yfirskrift efnisskrár fyrstu hádegistónleika ársins hjá Íslensku óperunni. Stefán Baldursson óperustjóri segir að hér sé á ferðinni sérstaklega vel heppnað og skemmtilegt samvinnuverkefni á milli óperunnar og Hörpunnar.

„Hádegistónleikarnir byrjuðu á sínum tíma í óperunni þegar hún var enn í Gamla bíói en varð svo að meira samvinnuverkefni eftir að við fluttum í Hörpuna. Þarna gefst okkur tækifæri til þess að vera með bæði reynda söngvara sem ungar vonarstjörnur og það finnst okkur sérstaklega skemmtilegt.“

Efnisskráin á hádegistónleikum er fjölbreytt yfir veturinn og auk þess koma fram söngvarar úr ýmsum áttum. Antonia Hevesi hefur verið undirleikari á öllum nema tvennum tónleikanna í Hörpunni og hún segir að þetta sé sérstaklega skemmtilegt tækifæri fyrir fólk til þess að kynnast lifandi óperutónlist.

„Þessir tónleikar eru ákaflega aðgengilegir fyrir alla og ekki aðeins vegna þess að það er frítt inn. Tónleikagestir fá útprentað blað með upplýsingum um það sem er á efnisskránni og svo segja söngvararnir venjulega aðeins frá hverri aríu fyrir sig. Það er fínt fyrir þá sem eru að byrja að taka svo með sér reynsluna og upplýsingarnar heim og halda áfram að hlusta þar. Þessi tónleikaröð er því einkar hentug fyrir þá sem vilja kynna sér óperutónlist og að sjálfsögðu líka þá sem eru þegar forfallnir óperuaðdáendur. Okkur finnst alltaf sérstaklega gaman að sjá þegar við erum að fá nýja og áhugasama áhorfendur.“

Á tónleikunum á morgun koma fram mezzósópransöngkonan Nathalía Druzin Halldórsdóttir og tenórsöngvarinn Egill Árni ásamt píanóleikaranum Antoniu Hevesi. Bæði Nathalía og Egill hafa hlotið verðlaun og viðurkenningar fyrir söng sinn og hafa komið víða fram bæði hérlendis og erlendis.

Á efnisskránni að þessu sinni eru aríur eftir Nikolai Rimsky Korsakov og Pjotr Iljits Tsjækovski auk Sisa tura, vögguljóðs frá Georgíu. Tónleikarnir fara fram í Norðurljósum í Hörpu þriðjudaginn 20. janúar kl. 12.15 og er aðgangur ókeypis.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.