Bíó og sjónvarp

Byssuframleiðandi sniðgengur Neeson

Liam Neeson með byssuna á lofti í hasarmyndinni Taken 3.
Liam Neeson með byssuna á lofti í hasarmyndinni Taken 3.
Byssuframleiðandinn sem útvegaði byssurnar fyrir Liam Neeson í Hollywood-myndinni Taken 3 hefur gagnrýnt leikarann fyrir ummæli hans um byssulög í Bandaríkjunum.

Fyrirtækið PARA USA segist „sjá eftir“ að hafa unnið með Neeson eftir að hann lét hafa eftir sér að byssueign í Bandaríkjunum væri „skammarleg“. Byssuframleiðandinn bætti því við að hann ætlaði að slíta á öll tengsl við Taken-myndirnar og hvatti önnur fyrirtæki til að gera slíkt hið sama, samkvæmt vefsíðu BBC.

„Við munum hætta að útvega vopn fyrir kvikmyndir með Liam Neeson í aðalhlutverki og óskum eftir því að vinir okkar og félagar í Hollywood forðist að tengja vörumerkið okkar og vörur við verkefni hans,“ sagði í yfirlýsingu fyrirtækisins á Facebook.

„Það eru bara of margar… byssur þarna úti,“ sagði írski leikarinn við Gulf News í Dúbaí í síðustu viku. „Sérstaklega í Bandaríkjunum. „Mér finnst þetta hneyksli. Í hverri viku sjáum við í dagblöðum: Nokkur börn til viðbótar voru drepin í skólum,“ bætti hann við. Ummælin hafði hann uppi er hann svaraði spurningu um Charlie Hebdo-skotárásina í París fyrr í mánuðinum sem kostaði fjölda manns lífið.

Neeson, sem hefur leikið Bryan Mills fyrrverandi starfsmann bandarísku leyniþjónustunnar, CIA, í þremur Taken-myndum, sagði að byssuvandamálið tengdist ekki hasarmyndum frá Hollywood. „Ég ólst upp við að horfa á kúrekamyndir og elskaði að gera þetta [byssuhreyfing] með fingrunum: Bang, bang, bang, þú ert dauður! Ég endaði ekki sem morðingi,“ sagði hann. „Persóna eins og Bryan Mills leggur af stað með byssurnar og leitar hefnda: þetta er fantasía.“

PARA USA sagði að ummæli Neesons endurspegluðu „vanþekkingu á menningu og staðreyndum sem grafa undan stuðningi við bandarísku stjórnarskrána og bandarískt frelsi“.

Taken 3 fór á toppinn, bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi, yfir aðsóknarmestu myndirnar eftir að hún var frumsýnd fyrr í þessum mánuði. Hún hefur einnig notið mikillar aðsóknar hér á landi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×