Lífið

Sjóræningjar í Ástralíu

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Úr fyrri Pirates of the Caribbean mynd.
Úr fyrri Pirates of the Caribbean mynd. mynd/disney
Mikið er um að vera í Queensland í Ástralíu þar sem framleiðsla er hafin á kvikmyndinni Pirates of the Caribbean: Dead Men Tell No Tales. Myndin er sú fimmta í röðinni um sjóræningjann síkáta, Jack Sparrow kaftein, sem Johnny Depp leikur.

Javier Bardem leikur óvin Sparrows sem heitir Salazar kafteinn í nýju myndinni og þá snýr Orlando Bloom aftur í myndinni sem Will Turner en hann var vant við látinn í fjórðu myndinni. Joachim Rønning og Espen Sandberg leikstýra myndinni en þeir leikstýrðu meðal annars myndinni Kon-Tiki.

Gert er ráð fyrir að myndin verði frumsýnd í júlí árið 2017.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×