Lífið

Heimsbyggðin sameinuð í söng á sunnudag

Guðrún Ansnes skrifar
Ýmir Björgvin Arthúrsson og Hrefna Ósk Benediktsdóttir bjóða alla hjartanlega velkomna í samsöng á sunnudaginn
Ýmir Björgvin Arthúrsson og Hrefna Ósk Benediktsdóttir bjóða alla hjartanlega velkomna í samsöng á sunnudaginn Vísir/Valli
Rúmlega 600 kórsöngvarar koma saman í Hörpu á sunnudag og syngja Love eftir John Lennon í þágu heimsfriðar. „Reykjavik Peace Festival er kórasamstarf þar sem koma saman kórar úr öllum landshlutum og af öllum stærðum og gerðum,“ segir Ýmir Björgvin Arthúrsson, upphafsmaður hátíðarinnar.

Verður tekið undir um allan heim á sama tíma, eða klukkan 17.00 að íslenskum staðartíma. „Við fengum Yoko Ono til liðs við okkur og hún stakk upp á að Love yrði fyrir valinu, sem hentar fullkomlega fyrir tilefnið,“ segir Björgvin. Söngvararnir eru hvaðanæva úr heiminum og verður sungið til dæmis í Bretlandi, Frakklandi, Kanada, Bandaríkjunum, Þýskalandi og Noregi.

Fulltrúar allra trúarbragðafélaga á Íslandi hafa boðað komu sína og mun hver og einn hafa meðferðis bæn sem sett verður í þar til gerða ástarkúlu.

Hugmyndina fékk Ýmir í kjölfar slyss sem orsakaði rúmlegu í þrjá mánuði. „Á meðan ég var tjóðraður, hálsbrotinn, ofan í rúm leitaði á mig þörfin fyrir að geta horft til baka og hugsað „ég gerði þetta“ og verið stoltur,“ segitr hann. Tilraun til heimsfriðar lá beinast við og hefur hann í slagtogi við eiginkonu sína, Hrefnu Ósk Benediktsdóttur, unnið að verkefninu undanfarin þrjú ár. „Að brjóta öll landamæri í samsöng er verðugt verkefni,“ segir Ýmir að lokum kampakátur.


Tengdar fréttir

Kórar syngja í Hörpu 22. febrúar fyrir friðinn

Í þekktu ljóði eftir skáldið Jónas Svafár segir: „vinna vélbyssur að vélritun / á sögu mannsins“. Það er ekki orðum aukið að alltof langir kaflar í sögu mannkyns hafi verið skrifaðir með blóði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×