Lífið

Dumplings ómissandi áramótaréttur

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Vertinn Wenli Wang segir hefð fyrir dumplings á hlaðborðum í tilefni áramótanna.
Vertinn Wenli Wang segir hefð fyrir dumplings á hlaðborðum í tilefni áramótanna. Vísir/GVA
„Stórfjölskyldan hér á landi kemur alltaf saman á þessum tíma og fagnar áramótunum með veislu,“ segir Wenli Wang, vert á Fönix á Bíldshöfða 12 í Reykjavík.

„Þó er allt með einfaldara sniði en úti í Kína. Þar standa hátíðarhöldin yfir í fimmtán daga og þeim fylgja ótal siðir og hefðir.“

Wenli segir hátíðarhöldin geta breyst örlítið eftir þema dýrsins en í heild haldist þau á mjög svipuðum nótum, alltaf sé mikið fjör og gleði.





Rétt Handtök Wenli segir best að forma hvern hálfmána í hendinni.
Nú er það ár geitarinnar sem er runnið upp. Wenli segir það eiga að tákna tíma stöðugleika, umhyggju og friðar.

„Í þeim boðskap sem fylgir kínverska dýrahringum er talið að börn sem fæðast á ári geitarinnar séu skapandi og góðhjörtuð og líti alltaf eftir öðrum,“ útskýrir hún.

Eitt af því sem Wenli segir ómissandi í áramótaveislum er rétturinn dumplings.



„Við eldum marga mismunandi rétti en dumplings er það sem einkennir hátíðahöldin,“ segir hún. „Það er líka siður að allir í fjölskyldunni búi það til saman.“

Wenli segir dumplings einn vinsælasta réttinn á Fönix, enda sé hann alltaf búinn til frá grunni, meira að segja sé kjötið hakkað á staðnum.

Innpökkun Nauðsynlegt er að brjóta hálfmánann vel saman.
Dumplings

Fyrir 25 dumplings

Deigið:

200 g hveiti

100 ml vatn

Fylling:

300 g svínahakk

¼ haus kínakál, smátt saxað (u.þ.b. 200 g)

3 msk. létt sojasósa

1 tsk. grænmetiskraftur

1 msk. sesamolía

1 tsk. ferskt engifer smátt saxað

1 msk. blaðlaukur smátt saxað

50 ml vatn

Salt eftir smekk

Sesamfræ

Vorlaukur





dumplings Einn vinsælasti rétturinn á borðum Fönix.
Hrærið saman hveiti og vatn og hnoðið vel. Látið deigið standa á heitum stað í 30 mínútur.

Blandið saman svínahakki, vatni og blaðlauk og hrærið vel. Bætið sojasósu, grænmetiskrafti, sesamolíu, salti og engifer vel saman við.

Dreifið hveiti á hreint borð og hnoðið deigið og skiptið því í 25 litla bolta. Notið lítið kökukefli til að fletja hvern deigbolta í litla köku á hveitistráðu borði.

Setjið matskeið af fyllingu í hverja köku og brjótið deigið saman til að mynda hálfmána.

Hitið stóra pönnu með nokkrum matskeiðum af olíu. Raðið dumplings varlega í pönnuna og hellið 50 ml af vatni yfir. Setið lok yfir pönnuna og steikið á miðlungshita í um 10 mínútur.

Raðið á disk og stráið sesamfræjum og söxuðum vorlauk yfir. Berið fram með sojasósu eða hrísgrjónaediki.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×