Lífið

Ný plata frá Backstreet Boys

Strákasveitin ætlar að taka upp nýja plötu.
Strákasveitin ætlar að taka upp nýja plötu. Vísir/getty
Strákarnir í Backstreet Boys eru langt frá því að vera hættir, en þeir tilkynntu á dögunum að þeir væru á leið aftur í stúdíó.

„Tónlistin okkar er alltaf að þróast og við erum tilbúnir að fara og taka upp nýtt efni síðar á árinu,“ sögðu þeir í tilkynningunni.

Að auki gerðu þeir samning við Live Nation um að spila á 150 tónleikum á næstu þremur árum.

Einnig verður nýja heimildarmyndin um þá, Show 'Em What You're Made Of, frumsýnd í Bretlandi í dag, en þeir fögnuðu tuttugu ára starfsafmæli fyrir skemmstu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×