Menning

Leika sér að ljóðum Vilborgar

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Líflegt er á sviðinu í leikdagskránni Enn hefur mig dreymt.
Líflegt er á sviðinu í leikdagskránni Enn hefur mig dreymt. Vísir/Ernir
„Við erum að leika okkur að ljóðunum hennar Vilborgar Dagbjartsdóttur,“ segir Þórhildur Þorleifsdóttir leikstjóri sem ætlar að stjórna leikdagskrá í Iðnó á sunnudaginn. Þar verða, auk hennar, sjö konur úr hópnum Sviðslistakonur 50+ og tvær tónlistarkonur að auki.

„Það er alls ekki þannig að hver konan af annarri standi upp og lesi ljóð heldur eru þau sungin og brotin upp og flutt með margvíslegum hætti,“ lýsir Þórhildur og segir skáldið Vilborgu ekkert skipta sér af flutningnum.

„Þetta er samt allt gert með hennar góðfúslega leyfi og hún mætir örugglega ef hún getur.

Þessi viðburður heitir á fésbókinni Vilborgargjörningur en Þórhildur kveðst leggjast gegn því nafni.  "Mér finnst það svo ó-Vilborgarlegt," segir hún.  Við köllum bara dagskrána Enn hefur mig dreymt.“

Flytjendur eru Edda Þórarinsdóttir, Bryndís Petra Bragadóttir, Jórunn Sigurðardóttir, Ólöf Sverrisdóttir, Salvör Aradóttir, Vilborg Halldórsdóttir og Þórunn Magnea Magnúsdóttir. Tónlistin er eftir Jóhönnu Þórhallsdóttur söngkonu sem flytur hana ásamt leikkonunum og Arnhildi Valgarðsdóttur tónlistarkonu. Leikmynd og búninga gerir Rebekka Ingimundardóttir.

Frumsýning á Enn hefur mig dreymt verður klukkan 17 á sunnudag og önnur sýning er klukkan 20 á mánudaginn, 23. mars.

„Þarna koma saman sér til skemmtunar konur sem eru yfir fimmtugt – skuggaverur samfélagsins,“ segir Þórhildur sposk. „Ég get lofað því að þær verða öðrum til skemmtunar líka.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×