Menning

Lagt á borð fyrir máltíð

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
 Hér hefur skapast sú hefð að ganga frá kirkjunni hingað að Klaustri á föstudaginn langa,“ segir Skúli Björn.
Hér hefur skapast sú hefð að ganga frá kirkjunni hingað að Klaustri á föstudaginn langa,“ segir Skúli Björn. Vísir/GVA
„Hér er bara verið að leggja á borð fyrir máltíð,“ segir Skúli Björn Gunnarsson, forstöðumaður á Skriðuklaustri, þegar slegið er á þráðinn til hans upp úr hádegi á föstudag og á þar við uppsetningu sýningarinnar Síðasta kvöldmáltíðin sem opnuð verður í dag, laugardag, klukkan 14.

Hann segir þó hvorki ósýrt brauð né oblátur á borðum heldur listviðburð.

„Sýningin er frá Handverki og hönnun og þar eru átta leirlistakonur með muni, þær Elín Haraldsdóttir, Embla Sigurgeirsdóttir, Guðný Hafsteinsdóttir, Kristbjörg Guðmundsdóttir, Kristín Sigfríður Garðarsdóttir, Ólöf Erla Bjarnadóttir, Sigrún Jóna Norðdahl og Þuríður Ósk Smáradóttir,“ segir Skúli Björn og tekur fram að Sunneva Hafsteinsdóttir sé sýningarstjóri.



Flík úr vörulínu Elísabetar Karlsdóttur fatahönnuðar.Mynd/Íris Stefánsdóttir
Í galleríi Klaustri sýnir svo Elísabet Karlsdóttir fatahönnuður verkefni sitt STAND UP/ STAND OUT. Verkefnið var styrkt af Eggerti feldskera og valið til að taka þátt í REMIX 2015, alþjóðlegri fata- og feldhönnunarkeppni í Mílanó sem haldin er í samstarfi við Vogue Talents. Meginefniviður línunnar er íslenska selskinnið sem er notað í bland við ull, silki, hreindýraleður, rauðref og bísam.

Skúli Björn getur þess að Elísabet sé af Héraðinu, nánar tiltekið frá Þrándarstöðum í Eiðaþinghá.





Sigrún Jóna Norðdahl vinnur verk fyrir Síðustu kvöldmáltíðina. Mynd/Íris Stefánsdóttir
Sýningarnar standa til 12. apríl en opið verður á Skriðuklaustri milli klukkan 14 og 17 um helgina og líka og á skírdag, næsta laugardag og á annan í páskum. Alla þessa daga er kaffihlaðborð hjá Klausturkaffi þar sem borð svigna undan kræsingum.

Á föstudaginn langa verður þar hádegishlaðborð í kjölfar árlegrar helgigöngu frá Valþjófsstaðarkirkju sem hefst klukkan 11.

„Hér hefur skapast sú hefð að ganga frá kirkjunni hingað að Klaustri á föstudaginn langa,“ lýsir Skúli Björn. „Á leiðinni er litið í passíusálmana og lesin vers úr þeim, svolítið misjafnlega mörg eftir veðri.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×