Unglingsstúlkur trylltar í tækni Guðrún Ansnes skrifar 29. apríl 2015 13:36 Tæknisnillingar framtíðarinnar stilla sér upp í Sólinni í Háskólanum í Reykjavík. Vísir/GVA
Um eitt hundrað stúlkur úr níundu bekkjum Fellaskóla, Hólabrekkuskóla, Ölduselsskóla og Árbæjarskóla komu saman í gær til að fagna Stelpu- og tæknideginum í Háskólanum í Reykjavík, í samstarfi við Ský og Samtök iðnaðarins. Dagurinn var tileinkaður stúlkum og tækni og er haldinn hátíðlegur víða um Evrópu, sem Girls in ICT Day. Hér var honum fagnað í annað skipti. Ari Kristinn Jónsson, rektor Háskólans í Reykjavík, segist binda miklar vonir við að dagurinn skili sér til komandi kynslóða enda sé um verðugt verkefni að ræða. „Staðan er svoleiðis að við Íslendingar stöndum öðrum Evrópulöndum að baki þegar kemur að tæknimenntun,“ segir hann og bendir jafnframt á að í ofanálag séu karlar í miklum meirihluta þegar kemur að umsóknum í tækninám. „Auðvitað viljum við efla hlut allra, en við verðum að tryggja að bæði kynin sjái tækifærin í náminu. Það er lykillinn að fjölgun.“ Ari segist reyndar farinn að sjá fjölgun kvenna í tæknigeiranum og nú hafi hlutfall kvennemenda í upplýsingatækni í skólanum verið í kringum einn fjórða, en ekki sé ýkja langt síðan staðan var allt önnur. „Það er einfaldlega hagur okkar allra að efla stöðu kvenna í tækninámi, því aukinn fjölbreytileiki skilar sér beinlínis í auknum gæðum.“ Ýmsar vinnusmiðjur stóðu stúlkunum til boða í gær og fengu þær að prófa sig áfram í því sem heillaði þær, svo sem forritun og vefsíðugerð. Í framhaldinu fengu þær að velja á milli tæknifyrirtækjanna Meniga, Tempó, Betware og Mentor og fengu að fylgjast með daglegri starfsemi þar. Þótti dagurinn takast afbragðs vel og engum blöðum um það að fletta að hér eru tæknisérfræðingar framtíðarinnar í blússandi mótun.
Mest lesið „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Lífið Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir Lífið Í vandræðum í Bláa lóninu Lífið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS Lífið „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ Lífið Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Lífið „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Lífið Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Lífið Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Lífið Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Lífið Fleiri fréttir Patrik í Flórída: „Það er í lagi með mig“ Aldís og Kolbeinn keyptu í Kópavogi Forsetahjónin létu sig ekki vanta og eltu veðrið Fæðing sonar Birgittu Lífar í LXS „Tilveran breyttist að eilífu til hins betra“ „Ákvað því að taka þetta í eigin hendur og grenjaði út tíma og pláss“ Edda Sif og Vilhjálmur eignuðust dreng Patrik sýnir frá lífinu í Flórída á meðan stormurinn gengur yfir „Verst þegar stelpur sem ég þekki ekkert grípa í brjóstin á mér“ Í vandræðum í Bláa lóninu Tólf hundruð fylgdust með tendrun friðarsúlunnar Halla í rándýrum kjól með Maríu og Friðriki Geitin er risin fyrr en nokkru sinni Sturlað augnablik þegar afmælisbarnið endaði uppi á borði Fyrsta sms sögunnar kom keppendum á óvart Geymdi lík sonar síns í tvo mánuði Vörpuðu sprengju á arkitektana á Ítalíu Arnar og Sara Björk eiga von á sínu öðru barni Heyrði varla í bónorðinu fyrir látum Sjóðheitir og einhleypir inn í haustið Þreyttur á stefnumótaöppum: „Hvernig fer ég að því að kynnast fólki?“ Gullmoli í Giljalandi Hafi enn verið hreinn sveinn Logi Geirs og Ólafur Ragnar léttir í London Ragnhildur og Hanna Katrín kveðja Búseta Tíu ár af ást: „Sennilega ekki auðvelt með mér“ Harry og Meghan séu ekki að skilja Galið að fræðsla um snípinn sé af skornum skammti Móðir Whitney Houston látin Stofnar eigin útgáfu og byrjar í ruslinu Sjá meira