Lífið

Úr Baywatch í réttarsalinn

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Jeremy Jackson var handtekinn eftir að fórnarlambið sagði að Hobie hafði stungið sig.
Jeremy Jackson var handtekinn eftir að fórnarlambið sagði að Hobie hafði stungið sig. Mynd/Getty
Stjarna úr Baywatch-þáttunum, sem nutu mikilla vinsælda á tíunda áratug síðustu aldar, var handtekin á laugardag fyrir að stinga mann.

Baywatch-stjarnan Jeremy Jackson, reyndi að flýja undan lögreglumönnum sem hugðust handtaka hann. Upphófst eltingaleikur sem endaði með því að Jackson náðist.

People greinir frá.

Maðurinn sem varð fyrir stungunni sagði lögreglu að hann hefði verið stunginn af Hobie, persónunni sem Jackson lék í Baywatch.

Hér að neðan má sjá Jackson leika í Baywatch.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×