Menning

Ég fattaði Ísland í Færeyjum

Magnús Guðmundsson skrifar
Unnsteinn Manuel og félagar í Borealis Band á sviðinu í Hörpu.
Unnsteinn Manuel og félagar í Borealis Band á sviðinu í Hörpu. Visir/Ernir
Borealis Band er umfangsmikið verkefni sem er ætlað að höfða til íbúa vestnorrænu höfuðborganna. Þrír ungir tónlistarmenn frá hverju landi taka þátt og þar af alltaf einn söngvari frá hverju landi.

Íslenski söngvarinn er Unnsteinn Manuel Stefánsson og hann segir að það sé búið að vera mjög gaman að taka þátt í verkefninu.

„Það er svo gaman að kynnast fólki og við erum með svo nátengda sögu. Við byrjuðum í Þórshöfn þar sem við æfðum upp prógrammið í þrjá daga og héldum svo tónleika á fjórða degi. Þaðan fórum við til Kaupmannahafnar þar sem við spiluðum á Norðuratlantsbryggju og loks til Grænlands og spiluðum í Nuuk. Það var alveg frábært að koma þangað enda fólkið alveg yndislegt. Síðustu tónleikarnir verða svo í Hörpu á föstudagskvöldið og það má enginn missa af því.

Það væri svo gaman að sjá verða framhald á þessu verkefni með nýju fólki. Það er nefnilega frábært að fá að kynnast tónlistarmönnum af þessu svæði og við eigum svo margt sameiginlegt og við getum líka lært margt hvert af öðru. Sjálfur fattaði ég til að mynda ekki Ísland fyrr en ég kom til Færeyja sem eru eins og smækkuð mynd af Íslandi.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×