Menning

Kveðjudans

Magnús Guðmundsson skrifar
Roots Unrooted Mirte Bogaert og Juliette Louste.
Roots Unrooted Mirte Bogaert og Juliette Louste.
Í júní og júlí verður Tjarnarbíó lokað vegna framkvæmda, þar sem efri hluti áhorfendastúkunnar verður endurgerður og ný, betri sæti sett í staðinn. Í nýja salnum verða 30 fleiri sæti og sjónlína verður leiðrétt. Einnig verður ýmis tækjakostur hússins endurnýjaður.

Í tilefni af þessum breytingum hafa Juliette Louste og Mirte Bogaert samið Roots Unrooted, dansverk til heiðurs gömlu stúkunni, sem þær munu frumsýna í kvöld kl. 20.

Áhorfendur á sýningunni munu fá að sjá salinn á hátt sem þeir hafa aldrei séð áður, en þær bjóða áhorfendum að hverfa á vit minninganna sem salurinn býr yfir, með leikgleði og dans að leiðarljósi, en Roots Unrooted er frumlegt dansverk sem þurrkar út hefðbundin mörk milli áhorfenda og flytjenda. Mirte Bogaert og Juliette Louste leita sífellt að nýjum heimkynnum, til að dansa, hittast, til að fagna tíma, rými, hreyfingu og hljómi. Þær eiga sér gerólíka sögu, en samt svo líka. Leið þeirra um tíma og rúm skapaði í þeim sams konar hugarfar, um listina og um lífið.

Sama kvöld, að sýningu lokinni, heldur Kári Viðarsson tónleika á Tjarnarbarnum. Hann hefur notið mikilla vinsælda með flutning sinn, sem er einhvers staðar á milli uppistands og tónleika.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×