Skoðun

Stígamót fyrir karla

Hjálmar Sigmarsson skrifar
„Ég skammaðist mín svo mikið fyrir þetta og ég var sannfærður um að ég ætti ekkert heima á Stígamótum. Ég hélt einhverra hluta vegna að ekki væri tekið á móti körlum sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi.“

Þrátt fyrir að karlar hafi verið velkomnir hingað í mörg ár fáum við á Stígamótum að heyra svona og sambærilegar sögur alltof oft. Það sem verra er, er að alltof margir karlkyns brotaþolar upplifa að þeir hafi ekki rétt á að leita sér hjálpar vegna kynferðisofbeldis eða þá einfaldlega að þeir eigi ekki að þurfa þess – af því þeir eru karlar. Á Stígamótum eru karlar rúmlega 10-20% þeirra brotaþola kynferðisofbeldis sem leita hingað á hverju ári. Rúmlega helmingur þeirra varð fyrir kynferðisofbeldi á barnsaldri.

Margir karlar lifa með afleiðingum kynferðisofbeldis árum eða áratugum saman án þess að leita sér hjálpar eða að segja nokkrum frá ofbeldinu. Helsta ástæðan fyrir því að karlar leita ekki eftir aðstoð er sú skömm, sektarkennd og sjálfsásakanir sem þeir finna fyrir og fylgja oft brotaþolum kynferðisofbeldis. Þessum tilfinningum er svo viðhaldið með samfélagslegum ranghugmyndum um karlmennsku annars vegar og kynferðisofbeldi hins vegar.



Skaðlegar ranghugmyndir

Reynsla okkar á Stígamótum gefur til kynna að ranghugmyndir um kynferðisofbeldi sé ein af meginástæðum þess að brotaþolar, bæði konur og karlar, taka á sig skömmina og tjá sig síður um ofbeldið. Þegar kemur að körlunum er menning okkar enn stútfull af alls konar karlmennskuhugmyndum sem gera ákveðnar kröfur til karla, til dæmis: Að karlar eigi að hafa stjórn á öllum sviðum lífsins; að karlar eigi að vera til í kynlíf hvar sem er, hvenær sem er og með nánast hverjum sem er; og að þeir eigi ekki að þurfa að leita sér hjálpar þegar þeir verða fyrir áföllum.

Margir karlar kenna sér um að hafa ekki haft stjórn á gerandanum eins og „alvöru“ karlar eiga að geta gert í hvaða aðstæðum sem er. Í staðinn ættu skilaboðin að vera þessi: Karlar verða fyrir kynferðisofbeldi, bæði sem börn og á fullorðinsaldri; afleiðingar þess eru mjög skaðlegar og geta dregið verulega úr lífsgæðum þeirra.

Bætt líðan

Undanfarin misseri hefur umræðan um karlkyns brotaþola aukist og hafa Stígamót reynt markvisst að tryggja að þeim sé mætt með skilningi þegar þeir leita sér hjálpar. Reynslan á Stígamótum sýnir að eftir a.m.k. fjögur viðtöl lýsir fólk aukinni sjálfsvirðingu og dregið hefur úr þunglyndi, kvíða og streitu. Markmiðið er að tryggja að fleiri karlkyns brotaþolar eigi svona sögu að segja:

„Eftir að ég leitaði mér hjálpar, þá var eins og þungu fargi væri létt af mér. Ég gat farið að tala um reynslu mína og takast á við þær tilfinningar sem ég var búinn að lifa með árum saman.“

Við á Stígamótum munum halda áfram að vekja athygli á þjónustu okkar fyrir karlkyns brotaþola og af því tilefni verður haldinn fundur fimmtudagsmorguninn 10. desem­ber á Stígamótum, titlaður „Karlar á Stígamótum“. Hallgrímur Helgason verður sérstakur gestur okkar á fundinum og mun hann flytja erindi og lesa úr bók sinni „Sjóveikur í ­München“. Einnig munu Stígamót kynna nýjan fræðslubækling um og fyrir karlkyns brotaþola.

Morgunverðarfundurinn fer fram á Stígamótum, kl. 8:30-10:00, Laugavegi 170, 2. hæð. Húsið verður opnað kl. 8:00 og boðið upp á léttar veitingar. Verið öll velkomin.




Skoðun

Sjá meira


×