Suárez: Mikilvægasta markið mitt Tómas Þór Þórðarson skrifar 23. mars 2015 16:00
Luis Suárez var hetja Barcelona í gærkvöldi í sínum öðrum El Clásico-leik þegar hann skoraði sigurmarkið, 2-1, á gullfallegan hátt eins og sjá má í myndbandinu hér að ofan. Suárez, sem var gagnrýndur fyrir að skora lítið fyrstu mánuðina í búningi Barcelona, er nú búinn að skora 14 mörk fyrir Katalóníurisann og gefa 13 stoðsendingar. Í heildina er hann búinn að koma að 27 mörkum í 27 leikjum.Sjá einnig:Suárez hetja Barcelona í El Clásico | Sjáðu mörkin Suárez náði heldur betur að troða ofan í Florentino Pérez, forseta Real Madrid, og íþróttablöðin í höfuðborginni. Pérez sagði Suárez ekki vera góðan leikmann síðasta sumar og Madrídarblöðin gerðu stólpagrín að Úrúgvæjanum fyrir að vera of þungur og auðvitað bíta Giorgio Chiellini á HM síðasta sumar. „Þetta er mikilvægasta markið sem ég hef skorað fyrir Barca. Þetta var sérstakt mark því ég skoraði það á móti erkifjendunum,“ sagði Luis Suárez eftir leikinn. „Þetta var mikilvægt mark fyrir mig og liðið því nú erum við með fjögurra stiga forskot og í betri stöðu. Þetta er þó ekki búið. Það eru margir erfiðir leikir eftir.“
Spænski boltinn Mest lesið Kallaði dómarann tík og rúmlega það Körfubolti Verstappen áfram hjá Red Bull Formúla 1 Atli og Eiður í KR Fótbolti Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Fótbolti Chicago Bears leita nýrra leiða til að tapa leikjum Sport Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Fótbolti Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Fótbolti Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Fótbolti Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Enski boltinn Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Enski boltinn Fleiri fréttir Atli og Eiður í KR Syrtir í álinn hjá Frey og félögum Real Madrid ekki í neinum vandræðum með Leganés Steve Cooper látinn taka pokann sinn hjá Leicester Sædís tvöfaldur meistari í fyrstu tilraun Hákon mættur aftur til leiks Ósannfærandi byrjun hjá Amorim Salah til bjargar og Liverpool á flugi inn í leikinn við City Jafnað í blálokin í uppgjöri Keflvíkinga í Hollandi Amanda lagði upp í dýrmætum sigri og Kolbeinn nær toppnum Framarar sótt fjóra bita í næstu deild „Hefurðu enga sómakennd?“ Fangelsisdómur hangir yfir höfði Haaland Diljá Ýr á skotskónum og OH Leuven á toppinn Héldu hreinu í fyrsta sinn manni færri megnið af leiknum Celta sótti jafntefli gegn tíu Börsungum Haraldur Árni áfram með Grindavík Sveindís funheit inn af bekknum og setti tvö Bodø/Glimt með langþráðan sigur Úlfarnir skelltu Fulham og enn bíður Villa eftir sigri Englandsmeistararnir niðurlægðir á heimavelli Gamla konan áfram taplaus Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Cecilía búin að loka og læsa marki Inter Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Jóhann lagði upp langþráð mark Ævintýri Róberts og félaga heldur áfram Ingibjörg og Hafrún nálgast Emilíu Létt gönguferð í skóginum hjá Arsenal Einfalt hjá Chelsea sem sækir að toppnum Sjá meira