Abby ekki ánægð með að Klinsmann skuli nota "útlendinga" eins og Aron Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 17. desember 2015 11:00 Abby Wambach, Jürgen Klinsmann og Aron Jóhannsson. Vísir/Getty
Knattspyrnukonan Abby Wambach lagði skóna á hilluna í gær eftir magnaðan feril en í einu viðtalanna fyrir lokaleikinn þá hraunaði hún yfir karlalandsliðsþjálfarann Jürgen Klinsmann og „útlendingastefnu" hans. Abby Wambach er ekki sátt við þá stefnu Klinsmann að finna leikmenn út um allan heim sem haga tengsl við Bandaríkin og geta þar með spilað með bandaríska landsliðinu. Íslendingurinn Aron Jóhannsson er í þessum hópi en Aron spilaði meðal annars með bandaríska landsliðinu á HM í Brasilíu 2014. Aron er langt frá því að vera sá eini því stór hluti af bandaríska liðinu hefur samskonar tengsl við Bandaríkin. „Ég myndi reka Jürgen [Klinsmann]. Ég tel að þessi tilraun með hann sem landsliðsþjálfara hafi ekki gengið upp," sagði Abby Wambach í viðtali við Bill Simmons og bætti við: „Hann hefur ekki einbeitt nægilega vel að uppbyggingu yngri leikmanna. Þó að hann segi það þá hefur hann ekki gert það að mínu mati," sagði Wambach. „Það að hann hafi komið inn með fullt af erlendum leikmönnum inn í liðið er eitthvað sem ég mun aldrei trúa á. Í mínu hjarta trúi ég ekki á slík vinnubrögð," sagði Abby. Abby Wambach hélt áfram að hrauna yfir Jürgen Klinsmann. „Það hlýtur líka að vera áhugavert fyrir leikmenn landsliðsins að sjá þjálfara sinn koma og fara af æfingum í þyrlu," sagði Wambach.
Fótbolti HM 2014 í Brasilíu Mest lesið Æfur og krefst rannsóknar eftir „lélegan brandara“ Sport Karlarnir fengu pening en konurnar sjampó, sápu og handklæði Sport Björgvin Karl hluti af nýrri atvinnumannadeild í CrossFit Sport Tvöfalt sjokk fyrir Alfreð Handbolti Úkraínska landsliðið finnst hvergi Sport Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fótbolti Handknattleiksambandið fær langmest úr Afrekssjóði ÍSÍ en KSÍ ekki neitt Sport Ballið byrjar hjá strákunum okkar Handbolti Mark ársins strax á fyrsta degi? Enski boltinn Conor McGregor og Logan Paul fá jafnmikið borgað fyrir bardagann Sport Fleiri fréttir Fullt af leikjum fyrir páska og langt hlé hjá konunum Segir The Sun flytja falsfréttir: „Þetta er að verða algjört rugl“ Hafa aldrei tapað þegar Jesus skorar Missir af stórleiknum vegna innvortis blæðinga Fyrrum landsliðsþjálfarinn aðlaður af konungi Mark ársins strax á fyrsta degi? „Ekki auðvelt að spila fyrir stórt félag eins og Arsenal“ Hákon Rafn á bekknum þegar Skytturnar skutust í annað sætið Willum Þór lagði upp þegar Birmingham tapaði stigum Fjölmargir leikmenn orðaðir við Arsenal Þessir mega byrja að ræða við önnur félög Carragher skammar Alexander-Arnold Zlatan biðst afsökunar eftir brottrekstur Fonseca Mætir Arsenal næst og kallar eftir skýrum reglum í hornspyrnum Vatnsbrúsaspark gæti leitt til lengra banns Antonio útskrifaður eftir rúmlega þriggja vikna spítaladvöl Dæmdur í tveggja leikja bann fyrir að ýta öryggisverði Áfrýjun Barcelona hafnað og tíminn að renna út „Við erum ekki að einbeita okkur að titilbaráttu“ Rooney hættur að þjálfa Guðlaug Victor Víkingar minnast vinar sem lést á 27 ára afmæli sínu Viðurkennir að Man. Utd sogist í fallbaráttu: „Mjög erfiðir tímar“ Newcastle bætti við martröð Man. Utd Skelltu Chelsea í þriðja sigri sínum á leiktíðinni Dómarar tilkynna áhorfendum ákvörðun sína Rashford laus úr útlegð Yfirgnæfandi líkur á að Liverpool verði Englandsmeistari Skoraði í ensku og dreif sig síðan í Ally Pally Í stormi innan vallar en vann góðverk utan hans Sögðu frá nýjum þjálfara AC Milan áður en hinn var rekinn Sjá meira