Erlent

Stél AirAsia 8501 er fundið

Vísir/AFP
Leitarflokkar á Jövuhafi hafa nú staðfest að stél farþegaþotu AirAsia sem fórst á dögunum, sé fundið. Fundurinn er sérstaklega mikilvægur í því ljósi að þar eru svörtu kassar vélarinnar geymdir, flugritarnir sem varpað geta ljósi á ástæður þess að vélin fórst. 162 voru um borð í vélinni þegar hún hrapaði þann 28. desember síðastliðinn. Búið er að finna fjörutíu lík í sjónum en talið er að flest séu þau enn um borð í skrokki vélarinnar sem líklegast liggur á hafsbotni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×