Norður-Kórea varar við stríði Samúel Karl Ólason skrifar 21. ágúst 2015 16:47 Haldinn var neyðarfundur í Norður-Kóreu í gær. Vísir/AFP
Yfirvöld í Norður-Kóreu vara nú við stríði við granna sína í suðri. Leiðtogi landsins hefur sett herinn í viðbragðsstöðu og skipað þeim að undirbúa sig fyrir átök, degi eftir að stórskotalið landanna tveggja skutu yfir landamærin. Fyrst skutu Norður-Kóreumenn yfir landamærin á hátalara sem spiluðu áróður gegn ríkisstjórninni í Pyoungyang. Suður-Kóreumenn skutu tugum skota til baka. Ekki er vitað til þess að nokkur hafi fallið í skothríðinni. Norður-Kóreumenn þvertaka þó fyrir að hafa skotið yfir landamærin. Yfirvöld í Pyoungyang sendu frá sér yfirlýsingu í dag þar sem þeir krefjast þess að slökkt verði á hátölurunum í Suður-Kóreu. Verði það ekki gert hóta þeir hernaði og að sökkva Seoul, höfuðborg Suður-Kóreu, í eldhafi. Yfirvöld Suður-Kóreu hóta á móti að bregðast við öllum árásum úr norðri. Á vef AP fréttaveitunnar segir frá því að hætt hafi verið við árlega heræfingu Bandaríkjanna og Suður-Kóreu vegna deilunnar. Norður-Kórea hefur gagnrýnt æfinguna, eins og gert er á hverju ári, og segja hana undirbúning fyrir innrás. Norður-Kórea fer fram á að slökkt verði á hátölurunum fyrir klukkan átta í fyrramálið að íslenskum tíma. Suður-Kórea segir hins vegar að það verði ekki gert. Útsendingarnar hófust eftir að Norður-Kóreumenn voru sakaðir um að koma fyrir jarðsprengjum sunnanmegin við landamærin sem særðu tvo Suður-kóreska hermenn. Hætt er við að deilurnar muni stigmagnast. Sérstaklega vegna þess, að árið 2010 létust um 50 borgarar í tveimur árásum stórskotaliðs á bæ í Suður-Kóreu. Eftir það sögðu yfirvöld í Seoul að hefnt yrði fyrir allar slíkar árásir með þreföldum krafti.
Tengdar fréttir Stórskotahríð í Kóreu Herinn í Norður-Kóreu virðist hafa skotið eldflaug á hátalara sunnan megin við landamærin. 20. ágúst 2015 10:27 Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Gerðu andlitsmynd af stærstu pöddu jarðsögunnar Þrettán látist vegna Marburg-veiru og ekkert bóluefni til Hefur ekki enn þorað út í morgun Enn varað við ofsaveðri en hreinsunarstörf hafin Fréttamenn í bölvuðum vandræðum í óveðrinu Skotárás við ísraelskt fyrirtæki í Gautaborg Flugstjórinn lést í miðri flugferð Biden og Netanyahu ræddu aðgerðir Ísrael gegn Íran Vaktin: Hvirfilbylir og flóð fylgja Milton Milljónir án rafmagns og nokkrir látnir eftir að Milton gekk á land Bein útsending: „Óveður aldarinnar“ skellur á Flórída Sprengdu upp vöruskemmu fulla af drónum Ísland sagt „heimili vefþrjóta og einkennisþjófnaðar“ Gætu ekki flúið þótt þau vildu Tvö eftir í leiðtogakjöri breskra íhaldsmanna Stóð af sér vantrauststillögu Þrír fá Nóbelsverðlaun fyrir að afhjúpa uppbyggingu prótína Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í efnafræði? Biden kallaði Netanjahú „tíkarson“ og „slæman gaur“ X snýr aftur í Brasilíu Hugðust ráðast á fjölda fólks á kjördag og deyja píslardauða Biden mun freista þess að leggja Netanyahu línurnar varðandi Íran Segir Rússa reyna að skapa usla á götum Evrópu Milton safnar aftur krafti Afhöfðaður sex dögum eftir embættistöku Segja hermenn Kim líklega á leið til liðs við Rússa Segja Hezbollah höfuðlaus eftir dauða arftaka Nasrallah Trump sendi Pútín kóvidpróf á laun Sjá meira
Stórskotahríð í Kóreu Herinn í Norður-Kóreu virðist hafa skotið eldflaug á hátalara sunnan megin við landamærin. 20. ágúst 2015 10:27