Erlent

Keypti auglýsingapláss við hraðbrautina til að hefna sín á ótrúum eiginmanni

Atli Ísleifsson skrifar
Þetta skilti birtist vegfarendum á Sheffield Parkway í gærmorgun.
Þetta skilti birtist vegfarendum á Sheffield Parkway í gærmorgun. Mynd/Twitter
Kona í enska bænum Sheffield ákvað að hefna sín á ótrúum eiginmanni sínum með því að kaupa risastóra auglýsingu á skilti við hraðbrautina sem maðurinn ekur á leið sinni til vinnu, með skilaboðum um hún yrði ekki heima þegar hann kæmi heim að loknum vinnudegi.

Eiginkonan, Lisa, greiddi fyrir auglýsingaplássið milli sex og níu í gærmorgun að staðartíma, en plássið er 3 metrar á hæð og 4,5 metrar að breidd.

„Til ótrús eiginmanns míns, Paul. Þið eigið hvort annað skilið. Þegar þú kemur heim mun ég ekki verða þarna. Njóttu bílferðarinnar til vinnu. Lisa,“ stóð á skiltinu.

Talsmaður auglýsingastofunnar Kong Media segir í samtali við Guardian að Lisa hafi greitt fleiri hundruð punda fyrir plássið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×