Lífið

Sjónvarpsföt og ritstjóraföt í Kolaportinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir Vísir/Valli
„Ég er í þessum töluðu orðum að brjóta saman kjóla í ferðatöskur,“ segir Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir. Hún og vinkonur hennar, Edda Hermannsdóttir og Sigrún Ósk Kristjánsdóttir, ætla að selja flíkur úr fataskápum sínum í Kolaportinu á sunnudag.

„Við ætlum að mæta með troðfullar ferðatöskur af alls konar sjónvarpsfötum og ritstjórafötum og ég veit ekki hvað og hvað.“ Ragnhildur segir þetta vera í fjórða skipti sem hún fer í Kolaportið með fötin sín.

„Ég held að við séum komin með fastakúnna sem bíða fyrir utan þegar opnar,“ segir hún.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×