Gylfi Þór að missa sætið sitt í framlínu Swansea Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. október 2016 15:30 Gylfi Þór Sigurðsson sækir að Petr Cech markverði Arsenal. Vísir/Getty
Gylfi Þór Sigurðsson skoraði eitt marka Swansea í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi þegar liðið tapaði 3-2 á móti Arsenal. Bob Bradley stýrði liði Swansea þarna í fyrsta sinn á tímabilinu og hann ákvað að tefla íslenska landliðsmanninum fram í fremstu víglínu í leiknum á móti Arsenal. Bob Bradley bauð upp á leikkerfið 4-3-3 þar sem Gylfi var fremstur og þeir Wayne Routledge og Mo Barrow sitt hvorum megin við hann. Gylfi hafði verið út á vinstri kanti í tveimur síðustu leikjunum undir stjórn Francesco Guidolin en þar áður inn á miðjunni eins og jafnan með íslenska landsliðinu. Gylfi nýtti sér tækifærið vel og skoraði fyrra mark Swansea í leiknum. Hann var einnig nálægt því að bæta við öðru marki í seinni hálfleik. Spænski framherjinn Fernando Llorente hefur spilað sem fremsti maður Swansea á þessu tímabili en hann missti af tveimur síðustu leikjum vegna meiðsla. Bob Bradley staðfesti það á blaðamannafundi í dag að Fernando Llorente sé leikfær og því er líklegt að Gylfi missi sætið sitt í framlínu Swansea í næsta leik þrátt fyrir að hafa skorað á móti Arsenal. Gylfi dettur þó væntanlega ekki út úr byrjunarliðinu heldur færist fremur í sína kjörstöðu inn á miðjunni. Swansea City, sem er í næstneðsta sæti deildarinnar, mætir Watford á heimavelli sínum Liberty Stadium á laugardaginn.
Enski boltinn Mest lesið Yfirlýsing Alberts: Ákveðinn léttir eftir erfitt ár Fótbolti Uppgjörið: Ísland - Litháen 0-2 | Vonir íslenska liðsins orðnar að engu Fótbolti Miklar líkur á vandræðalegri stöðu fyrir Ísland Fótbolti Åge óviss varðandi Albert: „Gæti verið ómögulegt“ Fótbolti Finnur Freyr í veikindaleyfi Körfubolti Þak leikvangsins rifnaði í tætlur Sport Åge ræður hvort kallað verði í Albert Fótbolti Heimir um ummæli Dunne: „Ykkar starf að safna áskrifendum“ Fótbolti Svona var fundur KSÍ fyrir leikinn við Wales Fótbolti Ætlar ekki að hætta að sjúga í sig kosmíska krafta Fótbolti Fleiri fréttir Mazraoui fór í aðgerð vegna hjartavandamála Stjörnulögfræðingur á að bjarga Paqueta frá lífstíðarbanni Milan vill að Zlatan sæki landa sinn frá Manchester Fyrrum leikmaður ÍBV og Sheffield United fannst látinn Leikmaður Chelsea flutti aftur heim til mömmu og pabba Gott fyrir Heimi en áfall fyrir Liverpool Grealish: Ég hefði átt að fara með á EM Félögunum refsað en Jackson sleppur Á skotskónum í framrúðubikarnum Lineker gefur lítið fyrir slúðursögur um framtíð sína Man City og enska úrvalsdeildin segjast bæði hafa borið sigur úr býtum Hætti á samfélagsmiðlum og hættir ekki að skora Onana haldið oftast hreinu Ofurvaramaðurinn Duran fær nýjan sex ára samning Næstu vikur gríðarlega mikilvægar fyrir Ten Hag „Bara lygarar og svindlarar sem segja að hann sé vandamálið“ Man United ekki byrjað verr síðan 1989 Hemp í sögubækurnar og Man City á toppinn Ten Hag: Erum allir á sömu blaðsíðu Ótrúleg endurkoma Brighton Forest fékk stig manni færri Markalaust á Villa Park Van Nistelrooy hræddur um að hann verði álitinn hafa stungið Ten Hag í bakið Markaskorarinn Kovačić: „Engir auðveldir leikir í þessari deild“ Óttast að Alisson sé frá næstu vikurnar Pickford bjargaði stigi Meistararnir lentu undir en unnu samt Skytturnar komu til baka gegn Dýrlingunum „Okkur er sama hvað öðrum finnst um okkur“ Liverpool með fjögurra stiga forskot á toppnum Sjá meira