Dæmdur í 236 ára fangelsi fyrir nauðganir Samúel Karl Ólason skrifar 21. janúar 2016 22:30 Daniel Holtzclaw var í dag dæmdur í 236 ára fangelsi. Vísir/Getty
Daniel Holtzclaw var í dag dæmdur í 236 ára fangelsi fyrir að nauðga fjórum konum og fjölmörg frekari kynferðisbrot. Hann var lögregluþjónn í Oklahoma í Bandaríkjunum þegar hann braut af sér á árunum 2013 og 2014. Holtzclaw neyddi konur sem höfðu komist í kast við lögin til að sænga hjá sér og að stunda munmök við sig. Þá sérstaklega konur úr fátækrahverfum Oklahomaborgar. Alls báru þrettán konur vitni gegn honum. Nokkrar af konunum sem báru vitni gegn honum sögðu hann hafa stöðvað þær í umferðinni. Þá kannaði hann hvort þær hefðu brotið af sér, eða ættu við fíkniefnavanda að stríða. Eftir það réðst hann á þær. Hann hafði verið ákærður fyrir 36 kynferðisbrot og var dæmdur sekur af 18 ákærum. Í dag var refsing hans ákveðin. AP fréttaveitan birti í fyrra ítarlega rannsókn á ásökunum gegn lögregluþjónum í Bandaríkjunum. Þar kom í ljós að um þúsund lögregluþjónum hefði verið sagt upp störfum vegna kynferðisbrota á sex ára tímabili. Iðulega væru brot þeirra kæfð. Hins vegar hefðu margir þeirra geta fengið vinnu hjá öðrum lögregluembættum í Bandaríkjunum.Sjá einnig: Varpa ljósi á fjölmörg kynferðisbrot lögregluþjóna Samkvæmt AP fréttaveitunni hafa nokkur af fórnarlömbum Holtzclaw höfðað einkamál gegn honum og borginni fyrir alríkisrétti. Samkvæmt Reuters var Holtzclaw rekinn í janúar í fyrra eftir að eitt fórnarlamb hans steig fram. Þá hafði hann verið lögregluþjónn í þrjú ár. Þegar refsing hans var kveðin upp brast Holtzclaw í grát og sagðist ekki hafa brotið af sér. Hann ætlar að áfrýja úrskurðinum.
Mest lesið Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Svikahrappurinn bjó í íbúð hinnar látnu í níu ár Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Skaut hundinn sjálfur og fékk háa sekt Innlent Dómur yfir Alberti kveðinn upp á fimmtudag Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent „Þingflokkur Pírata braut á mér“ Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Spurð hvort hún ætli sér ekkert meira en kennarastarf Innlent Fleiri fréttir „Sölumaður dauðans“ aftur í vopnasölu Úr óveðri í kröftugasta fellibyl ársins á sólarhring Segjast hafa ráðist á rússneskt ríkisútvarp á afmælisdegi Pútín Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Sjá meira