Menning

Vänskä áfram aðalgestastjórnandi Sinfó

Atli Ísleifsson skrifar
Osmo Vänska var aðalstjórnandi sveitarinnar á árunum 1993 til 1996.
Osmo Vänska var aðalstjórnandi sveitarinnar á árunum 1993 til 1996. Mynd/Sinfó
Finnski hljómsveitarstjórinn Osmo Vänskä hefur framlengt samning sinn sem aðalgestastjórnandi Sinfóníuhljómsveitar Íslands um þrjú starfsár, eða fram á sumar 2020.

Í tilkynningu frá sveitinni segir að hann hafi gegnt stöðunni frá 2014 en einnig verið aðalstjórnandi sveitarinnar á árunum 1993 til 1996. Hann stýrði hljómsveitinni meðal annars á tónleikum í Carnegie Hall árið 1996.

Vänskä segir Hörpu vera stórkostlegt tónlistarhús og mikilvægi þess fyrir íslenskt tónlistarlíf verði seint ofmetið. „Ég er sérlega ánægður með hversu Sinfóníuhljómsveitinni hefur farið fram frá því að hún flutti í Hörpu, og ég nýt þess að skapa dásamlega tónlist með þeim í hvert skipti sem ég kem hingað. Ég elska þessa hljómsveit og hlakka til samstarfsins við hana í framtíðinni.“

Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri hljómsveitarinnar, segir það felast mikil viðurkenning í því fyrir sveitina að Vänskä taki að sér hlutverk gestastjórnanda hennar. „Að öðrum ólöstuðum hefur aðkoma Osmo að hljómsveitinni skipt sköpum allt frá því að hann var ráðinn aðalhljómsveitarstjóri. Þannig hefur verið litið til þess að ákveðin straumhvörf hafi orðið hjá hljómsveitinni þegar hún hélt sína fyrstu tónleika í Carnegie Hall í New York undir hans stjórn árið 1996. Þar hlaut hún frábærar viðtökur og alþjóðlega athygli. Þessir tónleikar lifa enn í minni þeirra sem þá voru í hljómsveitinni og er oft minnst.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×