Enski boltinn

Ferguson: Man. Utd er rétta félagið fyrir Mourinho

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ferguson ætlar að skála með Mourinho í allan vetur.
Ferguson ætlar að skála með Mourinho í allan vetur. vísir/getty
Sir Alex Ferguson, fyrrum stjóri Man. Utd, er afar ánægður með að Jose Mourinho sé orðinn knattspyrnustjóri félagsins.

Ferguson spáir því að leiðin hjá félaginu muni liggja aftur upp á við með Mourinho við stýrið.

„Ég held að við munum sjá mikla bætingu á liðinu,“ sagði Ferguson og bætti við að það hafi verið mistök hjá Mourinho að fara aftur til Chelsea.

„Það er alltaf erfitt að fara í annað sinn til sama félags. Hann hefur unnið Evrópukeppnina tvisvar með tveimur félögum og unnið titla með öllum sínum félögum. Það er ekki hægt að líta fram hjá þessum árangri og ég held að Man. Utd sé rétta félagið fyrir hann.“

Mourinho hitti fjölmiðlamenn í fyrsta sinn í gær og sagði margt áhugavert við þá.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×