Gervilimur mótmælanda hæfði ráðherrann Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. febrúar 2016 13:39 Ástartækið hafnaði í andliti ráðherrans. skjáskot
Mótmælin vegna undirritunar fríverslunarsamningsins TPP, sem tólf Kyrrahafsríki eiga aðild að, tóku óvænta stefnu í gær. Þá varpaði einn mótmælendanna gervilim að efnahagsráðherra Nýja-Sjálands, Steven Joyce, er hann ræddi við þarlenda fjölmiðla. Fór það svo að limurinn hæfði Joyce í andlitið, í beinni útsendingu. Þúsundir hafa safnast saman undanfarna daga í Nýja-Sjálandi og mótmæli undirritun samningsins á fimmtudag. Samningurinn nefnist á ensku Trans-Pacific Partnership, skammstafað TPP, og felur í sér niðurfellingu tolla og fleira sem auðveldar ríkjunum að eiga viðskipti sín á milli. Sú leynd, sem hvílt hefur yfir samningaviðræðunum, hefur verið harðlega gagnrýnd. Einnig hefur gagnrýnin beinst að möguleikum fyrirtækja til þess að lögsækja ríki til að tryggja stöðu sína.Sjá einnig: Samningur Kyrrahafsríkja undirritaðurNokkur hópur mótmælenda var samankominn í Waitangi, norðan af Auckland, þar sem Steven Joyce ræddi við fjölmiðlamenn um samninginn sem hann sagði „þann stærsta á okkar tímum.“ Er mótmælandinn kastaði hjálpartækinu kallaði hann: „Þetta færðu fyrir að nauðga fullveldinu,“ og lenti það í andliti ráðherrans sem fyrr segir. Öryggisverðir fylgdu henni af svæðinu sem útskýrði síðar að hún hefði áhyggjur af því að samningurinn myndi leiða til hækkunar á lyfjaverði. Ráðherrann brást ágætlega við uppátækinu. „Þegar öllu var á botninn hvolft þá fannst okkur þetta bara frekar fyndið,“ sagði Joyce. „Alltaf eitthvað nýtt í stjórnmálum, það er heiður að fá að þjóna,“ bætti hann við.
Tengdar fréttir Samningur Kyrrahafsríkja undirritaður Fulltrúar tólf ríkja hafa undirritað umdeildan samning um niðurfellingu tolla og fleira. 5. febrúar 2016 07:00 Mest lesið Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Nýtt eftirlitskerfi á ytri landamærum Schengen-svæðisins Innlent Augljóst að ríkisstjórnarsamstarfið sé að nálgast leiðarlok Innlent Risaþotan flaug aftur yfir Reykjavíkursvæðið Innlent Fleiri fréttir Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Sjá meira
Samningur Kyrrahafsríkja undirritaður Fulltrúar tólf ríkja hafa undirritað umdeildan samning um niðurfellingu tolla og fleira. 5. febrúar 2016 07:00