Innlent

Þetta voru vinsælustu nöfnin á Íslandi árið 2015

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Aron og Emilía voru vinsælustu nöfnin í fyrra.
Aron og Emilía voru vinsælustu nöfnin í fyrra. vísir/getty
Aron var vinsælasta eiginnafn nýfæddra íslenskra drengja í fyrra, árið 2015, en þar á eftir komu Alexander og Viktor. Emilía var vinsælasta stúlkunafnið en í 2. og 3. sæti voru nöfnin Sara og Ísabella. Þór var langvinsælasta annað eiginafnið hjá drengjum en þar á eftir komu Freyr og Hrafn. Rós var vinsælasta annað eiginnafnið hjá stúlkum en á eftir því komu nöfnin Ósk og María.

Frá þessu er greint í frétt á vef Hagstofunnar en þar kemur fram að þegar litið er á allan mannfjöldann í ársbyrjun þessa árs þá voru 10 algengustu einnöfnin og fyrstu eiginnöfnin þau sömu og árið 2011. Hjá körlum var Jón algengasta nafnið, þá Sigurður og svo Guðmundur. Af kvenmannsnöfnum er Guðrún algengast, þá Anna og svo Kristín. Tíu algengustu karlmannsnöfnin hafa verið þau sömu frá 2011.

Jón Þór og Anna María algengustu samsetningarnar

Þá kemur jafnframt fram að flestir landsmenn bera fleiri en eitt nafn og voru í byrjun ársins þrjár algengustu samsetningarnar hjá körlum Jón Þór, Gunnar Þór og Jón Ingi. Þetta voru einnig algengustu tvínefnin fimm árum fyrr. Hjá konum voru þrjár algengustu samsetningarnar Anna María,  Anna Margrét og Anna Kristín. Þetta voru líka þrjú algengustu tvínefnin árið 2011.

Afmælisdagar dreifast svo ekki jafnt yfir árið en algengara er að börn fæðist að sumri og á hausti en yfir vetrarmánuðina, það er frá október og fram í mars. Alls eru 51,5% allra afmælisdaga á tímabilinu frá apríl til september. Í upphafi árs 2016 gátu flestir átt von á því að halda upp á afmælisdaginn 27. ágúst, alls 1.041 einstaklingar. Fæstir áttu afmæli á hlaupársdag, 29. febrúar, eða 211 manns. Næst kemur jóladagur (683) og aðfangadagur (716).




Fleiri fréttir

Sjá meira


×