Búist við stormi seinni partinn Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 20. desember 2016 07:54 Gert er ráð fyrir að það blási og snjói um mestallt land í kvöld og nótt en á morgun er búist við köldu og skaplegu veðri með éljum á víð og dreif. vísir/vilhelm
Búist er við stormi all víða um land seinni partinn í dag og fram yfir miðnætti. Gert er ráð fyrir að það blási og snjói um mestallt land í kvöld og nótt en á morgun er búist við köldu og skaplegu veðri með éljum á víð og dreif. „Djúp lægð nálgaðist landið í nótt og olli hún sunnan stormi með rigningu eða slyddu. Lægðin fer yfir landið í dag og þá er hægari vindur inni í lægðarmiðjunni. Vestan vindstrengur af stormstyrk er sunnan lægðarmiðjunnar og er hann væntanlegur inn á sunnanvert landið seinnipartinn með éljagangi. Á svipuðum tíma gengur norðan stormur inn á Vestfirði með snjókomu og frosti,“ segir í athugasemdum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar. Frá fimmtudegi fram á jóladag er áfram spáð köldu lofti yfir landinu svo snjó mun ekki taka upp og hvít jól víða líklega. Enn er óvissa í spánni fyrir jólin varðandi hvað mikið muni snjóa í viðbót og hvort muni blása með, en það hefur mikil áhrif á færð á vegum.Veðurhorfur á landinu: Sunnan 10-18 m/s og rigning eða slydda. Hiti 2 til 7 stig. Gengur í vestan 15-25 með éljum á sunnanverðu landinu seinnipartinn, en norðlægari og snjókoma á Vestfjörðum. Kólnandi veður. Blæs og snjóar víða um land í nótt, en fer síðan að lægja. Breytileg átt, yfirleitt á bilinu 5-10 á morgun og dálítil él. Frost 1 til 8 stig, kaldast í innsveitum fyrir norðan.Veðurhorfur á höfuðborgarsvæðinu: Sunnan 8-15 og skúrir, hiti 3 til 6 stig. Gengur í vestan 15-23 með éljum seint í dag og kólnandi veðri. Lægir í kvöld og nótt, breytileg átt 3-8 á morgun. Él og vægt frost.
Mest lesið Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Innlent Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Innlent Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða Innlent Fær mun minni fjárstuðning frá almenningi Erlent „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Innlent Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Innlent Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Innlent Banvænustu árásirnar í miðborg Beirút hingað til Erlent Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Innlent Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Innlent Fleiri fréttir „Innbrotsboð“ frá banka og angistarhljóð unglinga Íslendingar eiga ekki að aðlaga sig innflytjendum heldur öfugt Skæð fuglaflensa í hröfnum og hettumáfum Þriggja bíla árekstur á Miklubraut Engin afsökun lengur fyrir því að mæta ekki í brjóstaskimun Tveir slasaðir í alvarlegu umferðarslysi Ekki allir sem geta leitað í bakland eftir barnapössun Farið yfir dóminn: Albert metinn trúverðugri en konan Uppgjör á sögulegri heimsókn: Klæðaburður forsetamanns og umdeild ræða „Við þolum ekki þetta ástand mikið lengur“ Ekki útilokað að fleiri skólar bætist í hópinn Verkfallsnemendur með áhyggjur af náminu og tendrun jólageitarinnar Skýrist á mánudag hvort læknar fari í verkfall Misspennt fyrir verkfalli: „Þetta er fínt, meira frí“ Fjármálaráðherra búinn að endurskoða þjóðlendukröfur Hægir á landrisi Samið um flug til Eyja næstu þrjá vetur Sigmundur komst á forsíðuna en ekki Messi Rannsaka tengsl sköpunargáfu og ADHD Verkfall samþykkt með 100 prósent atkvæða í leik- og grunnskólum Reyna aftur að leggja niður Ríkisútvarpið ohf. Kæra ferðaþjónustufyrirtæki fyrir framkvæmdir í íshellum Efast um að málinu verði áfrýjað Ekki síst erfitt þegar menn eru fjölskylduvinir til margra áratuga Starfsmenn þessara skóla fara í verkfall Óeðlilegt að Guðmundur Ingi hafi hringt í ríkislögreglustjóra Albert sýknaður Komugjald í brjóstaskimun lækkar gríðarlega Þú finnur Íslendinga út um allan heim í fluginu Halla talar ensku við kónginn: „Ég held að það sé kannski nýi tíminn“ Sjá meira