Enski boltinn

Balotelli byrjaður að æfa með Liverpool

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Balotelli fékk faðmlag frá Dejan Lovren.
Balotelli fékk faðmlag frá Dejan Lovren. vísir/getty
Ítalinn Mario Balotelli var mættur til Liverpool í gær og æfði með liðinu undir stjórn Jürgen Klopp.

Balotelli hefur verið í láni hjá AC Milan en er kominn aftur til baka. Óvíst er hvort hann verði enn í herbúðum félagsins er tímabilið hefst.

Nýju strákarnir Sadio Mane, Joel Matip og Marko Grujic voru einnig mættir á æfinguna.

Fleiri leikmenn sem voru í láni á síðustu leiktíð voru einnig mættir til æfinga. Strákar eins og Luis Alberto og Lazar Markovic.

Flestra augu voru þó á Balotelli en Ítalinn var í góðu skapi á æfingunni og virtist njóta þess að hitta gömlu félagana aftur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×