Enski boltinn

Smalling veiktist í fríinu

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Smalling gaf eiginhandaráritanir á sjúkrahúsinu.
Smalling gaf eiginhandaráritanir á sjúkrahúsinu. mynd/twitter
Enski landsliðsmaðurinn Chris Smalling fór í frí til Balí eftir að Ísland hefði slegið England úr leik á EM.

Það frí gekk ekki áfallalaust fyrir sig því Smalling veiktist á Balí og þurfti að leggjast inn á sjúkrahús.

Hann fékk matareitrun og í kjölfarið leið yfir hann. Þá var hann fluttur á sjúkrahús en er búinn að jafna sig að fullu.

Smalling hefur annars sinnt stuðningsmönnum Man. Utd vel í Asíu eins og sjá má hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×