Skoðun

Erum við reiðubúin?

Siv Friðleifsdóttir skrifar
Eru velferðarsamfélög Norðurlandanna viðbúin áföllum? Er félagsþjónusta sveitarfélaganna tilbúin að takast á við vá? Hafa konur sérstöku hlutverki að gegna í kjölfar hamfara? Er unnt að sameinast um 30 velferðarvísa á Norðurlöndunum sem hjálpa okkur að greina hættur sem ógna velferð íbúanna? Hvernig er best að takast á við kreppur, hvort sem þær eru af mannavöldum eða sökum náttúruhamfara, þannig að velferð íbúanna verði ógnað sem minnst? Hvort er þá betra að beita úrræðum velferðarkerfisins eða láta lögmál frumskógarins gilda, hver sé sjálfum sér næstur? Hvað má læra af rannsóknum félagsvísinda um hvernig velferðarkerfi Norðurlandanna hafa tekist á við efnahagskreppur? Leitað verður svara við þessum spurningum og fleirum af sama toga á opinni lokaráðstefnu Norrænu velferðarvaktarinnar, sem haldin verður fimmtudaginn 10. nóvember nk. kl. 9-16 á hótel Hilton í Reykjavík.

Náttúrvá og efnahagsáföll

Norræna velferðarvaktin er þriggja ára rannsóknarverkefni sem stendur yfir árin 2014-2016 og er eitt verkefnanna í formennskuáætlun Íslands í norrænu samstarfi. Verkefnið miðar að því að undirbúa velferðarkerfin á Norðurlöndunum til að takast á við nýjar áskoranir og vá hvort sem hún er af völdum náttúruhamfara s.s. flóða, eldgosa eða jarðskjálfta, eða af mannavöldum, s.s. efnahagsáföll eða vegna flóttamannastraums, svo ný og nærtæk dæmi séu tekin. Verkefnið miðar einnig að því að ná samstöðu Norðurlandanna um val á 30 velferðarvísum, sem sýna tölulegar upplýsingar um þróun velferðar á Norðurlöndunum. Á ráðstefnunni verða eftirsóttir gestafyrirlesarar. Einnig munu forsvarsmenn einstakra verkefna Norrænu velferðarvaktarinnar kynna niðurstöður verkefna sinna. Verkefnin hafa verið leidd af Íslendingum, en innan þeirra allra eru starfandi stýrihópar skipaðir færustu fulltrúum Norðurlandanna á viðkomandi sviði. Í viðbót við fyrirlestra geta þátttakendur valið á milli stuttra kynninga á verkefnum svo þeir geti nýtt tímann sem best miðað við þeirra áhugasvið.

Velferðarvísar og viðbúnaðargeta

Fyrir utan þá þekkingu og auknu norrænu samlegð sem rannsóknarverkefnin færa okkur mun Norræna velferðarvaktin leggja fram tvær tillögur til Norræna ráðherraráðsins til áframhaldandi úrvinnslu. Önnur snýr að nýjum norrænum velferðarvettvangi sem koma mun saman annað hvort ár og ræða framtíðaráskoranir og úrræði velferðarkerfa Norðurlandanna. Hin snýr að smíði 30 sameiginlegra norrænna velferðarvísa. Allt miðar þetta að því að auka viðbúnaðargetu norrænu velferðarríkjanna, draga úr tjónnæmi og efla viðnámsþrótt almennings. Sem verkefnastjóri Norrænu velferðarvaktarinnar hef ég fengið tækifæri til að fylgjast með því öfluga rannsóknarstarfi sem hefur farið fram innan hennar og er ég fullviss um að verkefnið verði glæsileg fjöður í hatt Íslendinga í norrænu samstarfi þegar fram í sækir. Unnt er að sjá dagskrá ráðstefnunnar og skrá sig til þátttöku á vefsíðunni www.nvv.is.

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Yfir­lýsing kennara eftir fund með borgar­stjóra

Andrea Sigurjónsdóttir,Eygló Friðriksdóttir,Guðrún Gunnarsdóttir,Jónína Einarsdóttir,Kristín Björnsdóttir,Lilja Margrét Möller,Linda Ósk Sigurðardóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar

Sjá meira


×