Skref í átt að sjálfstæði Guðsteinn Bjarnason skrifar 1. febrúar 2016 07:00 Liðsmenn Peshmarga-sveita kúrda í norðurhluta Íraks á eftirliti í skotgföfunum suður af Kirkuk. Nordicphotos/AFP
Stjórnvöld í Bagdad eru farin að hafa áhyggjur af ógnarlangri skotgröf sem Kúrdar hafa verið að grafa til að verjast sjálfsvígsárásum frá vígasveitum DAISH-samtakanna. Kúrdasvæðin í norðri hafa í reynd fengið töluvert sjálfræði innan Íraks, enda hefur stjórnin í Bagdad varla mikið bolmagn til að láta neitt til sín taka þar meðan átökin við DAISH halda henni upptekinni sem og önnur ólga í landinu. Kúrdar hafa lengi látið sig dreyma um sjálfstætt ríki í norðurhluta Íraks, og helst næði það yfir suðaustanvert Tyrkland líka og jafnvel norðausturhluta Sýrlands. Kúrdar búa á öllu þessu svæði, sem þeir kalla Kúrdistan.Kúrdum í Írak hefur gengið mun betur en stjórninni í Bagdad að verjast DAISH-samtökunum, og ráða þeir nú eigin málum að mestu leyti sjálfir án aðkomu stjórnarinnar í Bagdad. „Tilgangur skotgrafarinnar er að byggja upp varnarkerfi gegn ökutækjum sem DAISH-hryðjuverkamenn nota til að sprengja bílsprengjur,“ hafði íranska fréttastofan PressTV nýlega eftir Jabar Jawar, talsmanni Peshmarga-sveitanna, sem eru hersveitir Kúrda í Írak. „Hún er tveggja metra djúp og þriggja metra breið. Hún er ekki alls staðar, því á sumum svæðum er hún óþörf.“ Hashem Seteh, yfirmaður í Peshmarga-sveitunum, segir ekki koma til greina að gefa eftir neitt af þeim svæðum sem Kúrdar hafa rekið DAISH-liða frá: „Ef stjórnin í Bagdad gerir nú tilkall til þessara svæða, hvers vegna sendi hún þá ekki einn einasta hermann til að taka þátt í bardögunum?“ spyr hann í viðtali við breska útvarpið BBC. Fleiri þjóðernishópar búa á þessum svæðum, sem skotgröfin liggur um.
Mest lesið Ekki í belti og undir áhrifum þegar hann lést Innlent Fylgdu eftir ábendingum um aðkomu undirheimanna Innlent Skipti öllu máli að telja drykkina Innlent Holan alls ekki eina slysagildran Innlent Uppruni stjarnanna óþekktur: „Hver andskotinn hefur verið að setja þetta inn?“ Innlent Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Erlent Athafnamaðurinn Þráinn Hafstein Kristjánsson látinn Innlent Segir ráðherra neita að afhenda gögn um bókun 35 Innlent Ræstu út mannskap til að kanna frágang fleiri brunna Innlent Hætta að sekta fyrir notkun nagladekkja Innlent Fleiri fréttir Deila Nóbelnum fyrir uppgötvun á miRNA Bein útsending: Hver fær Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Fjórtán ára ráðinn til að hefna fyrir morðið á fimmtán ára Eitt ár frá upphafi stríðsins á Gasa Íranskur herforingi sagður hafa látist í loftárásum Ísraela Lýsa nóttinni sem skelfilegri Minnkandi virðing fyrir heilbrigðisstarfsfólki á Gasa Ung kona látin eftir skotárás í Ísrael Huldukona í lykilhlutverki í lygilegu ráðabruggi um símboðana „Ein versta nóttin“ í Beirút frá upphafi átaka Sneri aftur á vettvang banatilræðisins Engum verði vísað út við myndbirtingu Minnst sextán látnir í aurskriðum í Bosníu og Hersegóvínu Einn af leiðtogum Hamas lést í loftárás á Líbanon Minnst sjötíu í valnum eftir árás glæpamanna Versnandi ástand í Pokrovsk Trump sagði Pence að hann yrði fyrirlitinn og talinn heimskur Gerðu árás á landamærastöð þar sem tugir þúsunda hafa flúið Obama leggur land undir fót fyrir Harris í næstu viku Sýknaðir af alvarlegustu ákærunum vegna dauða Nichols Hvaldímír drapst af völdum bakteríusýkingar 21 árs konu bjargað á Gasa tíu árum eftir að henni var rænt Arftaki Nasrallah sagður drepinn í árás Ísraela Vita um tvo Íslendinga í Líbanon Segja íbúum tuttugu og fimm þorpa að flýja Hringmyrkvi sýnilegur yfir syðsta oddi Suður-Ameríku Fyrsta heimsókn Rutte til Úkraínu Íhuga árásir á olíuvinnslur og kjarnorkustöðvar í Íran Nýnasisti sagðist ekki hafa stungið börn vegna rasisma Rússar reyndu að skjóta niður ísraelskar stýriflaugar Sjá meira