Erlent

Nauðgað aftur á sjúkrahúsi

Samúel Karl Ólason skrifar
Öryggisvörðurinn hefur verið handtekinn og er beðið eftir að stúlkan fer í læknisskoðun.
Öryggisvörðurinn hefur verið handtekinn og er beðið eftir að stúlkan fer í læknisskoðun. Vísir/EPA
Fimmtán ára stúlka sem var á sjúkrahúsi eftir nauðgun í Indlandi segir að öryggisvörður hafi nauðgað henni á sjúkrahúsinu. Atvikið er sagt hafa átt sér stað einungis nokkrum dögum eftir að stúlkunni var nauðgað af dreng í borginni Jamshedpur.

Öryggisvörðurinn hefur verið handtekinn og er beðið eftir að stúlkan fer í læknisskoðun. Hún hefur verið færð á annað sjúkrahús. Samkvæmt frétt AFP eru sjúkrahús í Indlandi yfirleitt fjársvelt, með slæmri öryggisgæslu og starfsmenn þeirra of fáir.

Í nokkur ár núna hefur verið fylgst náið með ofbeldi gegn konum í Indlandi, eða eftir að hópur manna nauðgaði ungri konu í strætó. Hún lést svo af sárum sínum. Eftir það atvik hafa lög í landinu verið hert, en þrátt fyrir það er tíðni nauðgana enn mjög há.


Tengdar fréttir

Styttu kossasenur Bond í Indlandi

Indverjar gera grín að ákvörðun kvikmyndaeftirlits Indlands þar sem lengd kossaatriða í Spectre þótti óviðeigandi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×